Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. apríl 2026 14:58 Þrír voru handteknir á Akureyri í byrjun mars. vísir/viktor freyr Rannsókn á meintu kynferðisbroti og líkamsárás á Akureyri í byrjun mars hefur verið hætt. Talið var að ekki væri hægt að sýna fram á meint brot. Eitt brotanna, gegn kynferðislegri friðhelgi, hefur verið sent til héraðssaksóknara. „
Það var ekki talið að það væri hægt að sýna fram á meint brot,“ segir Eyþór Þórbergsson aðstoðarsaksóknari í samtali við fréttastofu. Eva Hauksdóttir, lögmaður konunnar, segir að lögreglan hafi hætt rannsókn á ákveðnum þáttum málsins. Hins vegar hafi brot gegn kynferðislegri friðhelgi, sem varði myndbönd sem hafi verið tekin umrætt kvöld, verið sent til héraðssaksóknara. Sá þáttur varði einn sakborninganna. Þann 10. mars var greint frá því að þrír hefðu verið handteknir aðfaranótt sunnudagsins 8. mars grunaðir um að hafa átt þátt í kynferðisbroti. Meðal þeirra sem voru handteknir voru Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, og Sigurður Sindri Magnússon eða Siggi Delux. Báðir neita þeir sök og hafa þeir báðir sagt að lögregla hafi fellt niður rannsókn á þeim. Í viðtali á Vísi sagðist Sigurður hafa leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað og því hafi hann verið boðaður í skýrslutöku við upphaf rannsóknarinnar. Á föstudag tjáði lögregla Sigurði að hún hefði fellt niður rannsóknina þar sem ekki þótti grundvöllur til að halda rannsókninni á honum áfram. Kristján Einar birti mynd fyrir nokkrum dögum á Instagram þar sem hann segir að lögreglan hafi hætt rannsókn. „Sú niðurstaða kemur mér ekki á óvart, þar sem ásakanirnar voru með öllu tilhæfulausar. Þetta er skýr áminning um að trúa ekki öllu sem sagt er,“ skrifar hann við sjálfu sem hann birti. View this post on Instagram A post shared by SIR.KLEINI (@sir.kleini) Eftir að greint var frá því að Kristján Einar hefði verið einn þeirra sem voru handteknir birtu Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Svala Björgvinsdóttir, tvær fyrrverandi kærustur Kristjáns, færslur þar sem þær sögðu að hann hefði beitt þær báðar ofbeldi.
Lögreglumál Akureyri Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Hafdís stígur fram vegna Kleina „Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir um fyrrverandi kærasta sinn, Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina, sem sagður er hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum. 10. mars 2026 10:21 Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Svala Björgvinsdóttir hefur stigið fram til stuðnings Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur en báðar áttu þær í sambandi við Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini. Hann er sagður hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum. 10. mars 2026 18:42 Segist saklaus Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu. 11. mars 2026 18:16 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Fleiri fréttir Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Sjá meira
Hafdís stígur fram vegna Kleina „Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir um fyrrverandi kærasta sinn, Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina, sem sagður er hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum. 10. mars 2026 10:21
Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Svala Björgvinsdóttir hefur stigið fram til stuðnings Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur en báðar áttu þær í sambandi við Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini. Hann er sagður hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum. 10. mars 2026 18:42
Segist saklaus Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu. 11. mars 2026 18:16