Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sindri Sverrisson skrifar 22. apríl 2026 09:00 Ellie Carpenter með boltann á Stamford Bridge í einvíginu við Arsenal í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem Chelsea tapaði naumlega. Getty/Warren Little Frá og með næstu leiktíð mun kvennalið Chelsea spila alla sína heimaleiki á Stamford Bridge, 40.000 manna leikvanginum sem karlalið félagsins spilar sína heimaleiki á.
Þetta tilkynnti félagið sem þar með verður það fjórða í efstu deild Englands í fótbolta þar sem kvennaliðið spilar á aðalleikvangi félagsins. Kvennalið Chelsea er ríkjandi Englandsmeistari og sigursælasta lið deildarinnar með átta Englandsmeistaratitla. Ákvörðunin um að spila heimaleiki á Brúnni, og kveðja Kingsmeadow, var tekin í samráði við leikmenn, samstarfsaðila og stuðningsmannafélög. View this post on Instagram A post shared by Chelsea FC Women (@chelseafcw) „Þessi stund er ekki bara fyrir okkur,“ skrifuðu leikmenn Chelsea í bréfi til stuðningsmanna. „Þetta er fyrir hvern einasta leikmann sem borið hefur merki Chelsea. Þetta er fyrir öll þau sem ýtt hafa kvennaboltanum áfram. Þetta er fyrir alla stuðningsmennina sem hafa verið með okkur á þessu ótrúlega ferðalagi,“ skrifuðu leikmennirnir og bættu við: „Þetta er nýr kafli en markmið okkar eru áfram þau sömu. Við viljum vinna. Við viljum lyfta fleiri bikurum. Við viljum skapa meiri sögu. Það er það sem Chelsea hefur alltaf gert og við ætlum að halda því áfram með stuðningsmönnum okkar á Brúnni.“ Á meðal þess sem til stendur að gera á nýja heimavellinum er að hafa botnlausan bröns, þar sem stuðningsmenn geta komið saman og gætt sér á veitingum. Fjórða liðið sem fer þessa leið Kvennalið Chelsea hefur spilað fjóra deildarleiki á Stamford Bridge á þessari leiktíð og mættu 30.545 manns á leik liðsins við Arsenal í janúar. Mest hafa 34.302 manns mætt á leik kvennaliðsins á Stamford Bridge sem jafnframt hefur verið heimavöllur liðsins í Meistaradeild Evrópu síðan í vetur. Áður höfðu Arsenal, Aston Villa og Leicester ákveðið að láta kvennalið sín spila alla heimaleiki á aðalleikvangi sínum.
Enski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Sjá meira