Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Kristján Már Unnarsson skrifar 22. apríl 2026 13:50 Hildigunnur H. H. Thorsteinsson er veðurstofustjóri. Sigurjón Ólason Hildigunnur Thorsteinsson veðurstofustjóri segir nýjar skýrslur um hættusvæði vegna hraunrennslis kalla á umræðu um það hvort setja þurfi skýrari reglur um hvar megi skipuleggja byggð.
Skýrslur Veðurstofunnar sem birtar voru í gær um eldfjallavá á Reykjanesskaga skilgreina Grindavík, Hveragerði og hluta Hafnarfjarðar sem þau bæjarfélög sem eru í mestri hættu á hraunflæði. Slíkir atburðir hafa þegar raungerst í Grindavík í eldgosum síðustu ára og Vallahverfi í Hafnarfirði hefur einnig verið í umræðu vegna slíkrar hættu undanfarin ár. Við spurðum Hildigunni Thorsteinsson veðurstofustjóra hvort það hefði komið henni á óvart að sjá Hveragerði sett í slíkan áhættuflokk. „Ég náttúrulega kem úr orkugeiranum og er búin að vera með Hengilinn í mörg ár. Hengillinn og Hrómundartindur eru stórar eldstöðvar og við sjáum að hraun hefur runnið meðfram hlíðum eldfjallsins og getur gert það aftur,“ svarar Hildigunnur í hádegisfréttum Bylgjunnar. Horft yfir Hveragerði í átt til eldstöðvakerfis Hengilsins.Vilhelm Ógn gagnvart höfuðborgarsvæðinu er almennt metin lítil í skýrslunum. Þó voru sýndar fimm líklegar hraunrennslisleiðir í átt að þessu mesta þéttbýli Íslands. -Það er kannski minni hætta á höfuðborgarsvæðinu en margir hefðu talið? „Það eru náttúrulega þessar aðalrennslisleiðir inn frá eldfjöllum í kring. Það er, við erum ekki nálægt gosupptökum á svipaðan hátt og Grindavík er. Þannig að ég held að af öllum bæjunum, þá er Grindavík næst þeim stað þar sem gosupptök geta verið nálægt bænum. Önnur sveitarfélög þurfa frekar að horfa á flæði inn til bæjarins eða borgarinnar.“ Fimm líklegustu hraunrennslisleiðir í átt að byggðinni á Reykjavíkursvæðinu.Veðurstofan -Getur þetta orðið til þess að menn kannski takmarki hvar megi byggja? „Ég held að það gæti alveg verið. Ég held við höfum bara verið með í skipulagsreglugerð um að það þurfi að horfa til náttúruvár. En eftir því sem við erum með betri upplýsingar um hver sú vá er og á hvaða svæðum þá held ég að við þurfum alla vega að taka samtal um hvernig við viljum nýta okkur þær og hvort við viljum ekki vera aðeins sértækari, gera skýrara hvar má og hvar má ekki. Og ef það má, eru einhverjar varnaraðgerðir sem þarf þá að horfa til,“ segir Hildigunnur H. H. Thorsteinsson veðurstofustjóri í hádegisfréttum Bylgjunnar:
Almannavarnir Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Skipulag Grindavík Hafnarfjörður Hveragerði Tengdar fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. 21. apríl 2026 22:10 Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira
Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar. 21. apríl 2026 22:10
Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi. 21. apríl 2026 15:30