Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar 22. apríl 2026 16:03 Hvernig verður umfjöllun um rekstur sveitarfélags að skemmtilegu lesefni?Jú, það má reyna fjalla um hann á mannamáli. Það sem þú veist væntanlega lesandi góður er að Sveitarfélög fá sínar tekjur að mestu leyti beint úr vasa þínum. Það gerist með Útsvari sem tekið er beint af launum þínum í formi skatts. Svo er fasteignaskattur, jafnvel lóðarleiga, innheimt af húsinu þínu. Hin ýmsu gjöld greiðir þú líka eins og sorphirðugjöld, leyfisgjöld og jafnvel leikskólagjöld o.fl. Margir greiða líka fyrir vatnið sem þeir nota og svo mætti áfram telja.Ríkið greiðir svo mótframlag í formi Jöfnunarsjóðs, en þeim sjóði er dreift á byggðir landsins. Það hefur væntanlega ekki farið framhjá þér hinn árlegi lofsöngur um þann góða rekstur sem einkennir sveitasjóð okkar Skagfirðinga. Höfundar lofsöngvana eru hins vegar þeir sömu og stýra skútunni, þ.e.a.s meirihluti sveitarstjórnar.Almenningur verður að leyfa sér að trúa upplýsingum sem til hans berst og gerir að sjálfsögðu þá kröfu að farið sé með staðreyndir þegar rekstur sveitarfélagsins er til umræðu, líkt og fyrrnefndir höfundar hafa óskað eftir í nýlegri grein. Í sömu grein mátti hins vegar lesa gögn úr ósamþykktum ársreikningi fyrir árið 2025, sem nú er í umræðuferli hjá sveitarstjórn og lokaniðurstaða því ekki staðfest. Það hlýtur að teljast óábyrgt að birta slíkt og flokkast alls ekki sem staðreyndir. En fyrst við erum komin á þann stað að fjalla um staðreyndir, þá skulum við “demba” okkur í nokkrar slíkar: Það er engin launung að tekjur Skagafjarðar hafa aukist um nokkra milljarða á síðasta áratug, sem er gleðilegt.Enn hver er hin raunverulega ástæða þess að tekjur hafa aukist?Er það þeim að þakka sem hafa verið við stjórnvölin hingað til?Síður en svo, þakka má ytri áhrifum fyrir að svo sé.Förum aðeins yfir það.1. Útsvar hefur hækkað ár frá ári vegna launahækkana á vinnumarkaði, sem þýðir að þú lesandi góður greiðir meira til sveitarfélagsins ef að launin þín hækka.Annað sem stýrir hækkun Útsvars er fjölgun íbúa. Sú fjölgun verður ekki nema að aukin atvinnutækifæri verði til í sveitarfélaginu. Þar þori ég að fullyrða að öflugt einkaframtak á svæðinu hefur borið þá gæfu að fjölga íbúum, samanber stækkanir samstæða hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og annarra minni einkarekinna fyrirtækja hér í héraði. 2. Næst má nefna tekjur af fasteignum. Í kring um 2015 varð breyting á fasteignamarkaði sem keyrði upp íbúðaverð um tugi prósenta. Fyrir vikið hækkaði fasteignamat á svæðinu og þar af leiðandi jukust tekjur af fasteignum til muna. Tekjur sem koma frá þér eins og áður segir, því fasteignaskattur sem þú greiðir af eigninni þinni reiknast út frá fasteignamati hennar. 3. Tímamót í sögu Skagafjarðar sameina alla þætti tekjuaukningar en það er sameining Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps. Fjölgun íbúa um tæpa 200 einstaklinga í sameinuðu sveitarfélagi með tilheyrandi útsvari, auknu magni fasteigna og öðrum viðbótartekjum. 4. Tekjur frá Jöfnunarsjóði hafa einnig aukist með fjölgun íbúa. Mögulega máttu lesandi góður þakka meirihlutanum fyrir það, því þú hefur hingað til þurft að greiða hæstu skattheimtu til sveitarfélagsins sem völ er á, til að hámarka greiðslur frá Jöfnunarsjóði. Nú hefur hins vegar fasteignaskattur verið slitin frá og hænuskref stigin til að lækka fasteignagjöld. Það er jákvætt en betur má ef duga skal. 5. Aðrar tekjur hafa einnig aukist og til að stikkla á stóru má nefna tekjuaukningu hjá Hitaveitu og Hafnarsjóði svo dæmi séu tekin. Nú höfum við fjallað um tekjuaukningu í rekstri sveitarfélagsins og er fátt þar sem stjórnendur skútunnar geta barið sér á brjóst fyrir og eignað sér heiður af.Hins vegar snýst þetta um hvernig fjármunir okkar eru notaðir, en það er fróðlegt að greina þann „góða rekstur“ sem viðgengist hefur í sveitasjóði síðasta áratug. Á tíu ára tímabili milli áranna 2015 og 2024 er tekjuaukning upp á 5.177 milljónir.Þrátt fyrir það hafa heildarskuldir aukist um 4.235 milljónir og lántaka að meðaltali verið 645 milljónir á ári, yfir sama tímabil.Meðfylgjandi tafla er tekin saman til stuðnings þessum tölum, en hún er unnin úr ,,samþykktum” ársreikningum sem opnir eru almenningi á heimasíðu Skagafjarðar. Það er villandi að nota einungis langtímaskuldir þegar skuldastaða er rædd og því miður fyrir þá sem vilja fegra hlutina þá er skuld einfaldlega skuld, hvort sem hún er til langs eða skamms tíma. Þú lesandi góður þekkir það sjálfur, bankinn sleppir þér ekki við að greiða yfirdráttinn frekar en lánið af húsinu.Það liggur í augum uppi að hærri skuldir kalla á meira fjármagn í afborganir og vexti. Það er ekki fjármagn sem nýtist til að auka þjónustu, til nýframkvæmda né til að sinna viðhaldsskuldum sem safnast hafa upp, er það? Annar undarlegur málflutningur er sú fullyrðing að engin lán hafi verið tekin til að framkvæma hjá sveitarfélaginu, aðeins ný lán fengin til að skuldbreyta öðrum lánum.Það er líkt og ég færi á bílasölu til að kaupa bíl sem ég hefði ekki efni á. Ég myndi svo nýta mér skuldbreytingu á húsnæðisláninu mínu til að geta greitt bílinn. Á sama tíma myndi ég reyna að telja þér trú um að ég hafi alls ekki tekið lán fyrir bílnum. En burt séð frá þessum afvegaleiðingum.Hvað veldur þessari skuldasöfnun hjá sveitarfélaginu þrátt fyrir auknar tekjur?Hafa framkvæmdir farið langt fram úr áætlunum?Erum við að framkvæma meira en við höfum efni á?Hefur forgangsröðun verið eðlileg? Og svo má líka spyrja að öðru:Hvað gerist ef að tekjur standa í stað eða jafnvel lækka?Hvað ef lokað verður fyrir undanþágu vegna hreinsunar fráveitu í þéttbýli?Hvað ef t.d. fráveitukerfi í neðri bæ Sauðárkróks gefur sig endanlega og hluti íbúa þarf að flýja heimili sín?Hvað ef versta mögulega flóð í Héraðsvötnum miðað við útreiknuð líkön raungerist? Hér er einungis brot af þeim óvissuþáttum sem geta haft alvarlegar afleiðingar á rekstur Skagafjarðar ef skuldir halda áfram að aukast. Þetta eru staðreyndir og nú er tími til kominn að horfast í augu við þær. Í lokin er vert að minnast á nokkrar lausnir gegn skuldasöfnun sem við í Byggðalistanum ætlum að leggja til á komandi kjörtímabili: Lágmarka lántöku: Minni lántaka eykur verðmæti sveitasjóðs. Forgangsraða verkefnum: Skynsemi í framkvæmdum skiptir máli. Titla lóðir ekki úthlutunar hæfar nema gata sé komin að þeim: Sex til tólf mánaða bið eftir aðgengi að lóð gerir lóðaumsókn ekki eftirsóknarverða. Umsækjendur lóða vilja byggja strax. Lágmarka innheimtu lóðagjalda: Tekjur koma þegar fólk og fyrirtæki ráðast í uppbyggingu. Sveitarfélagið má ekki vera hamlandi kostnaðarhluti í uppbyggingu. Stiglækka álagningaprósentu fasteigna: Minni gjöld á fasteignir gerir rekstrarumhverfi þeirra meira aðlaðandi fyrir aukna uppbyggingu. Vinna útboðsgögn með góðum fyrirvara: Knappur verktími kallar á hærri einingaverð í útboðum. Verktakar vilja skipuleggja lengra fram í tímann. Hönnunarvinna rýnd af fagaðila: Ráða fagaðila með byggingartæknimenntun til að rýna hönnun og stýra framkvæmdum með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi. Skapa gott vinnustaðaumhverfi: Þjálfun yfirmanna og bætt aðgengi að fagaðilum getur aukið starfsánægju og dregið úr veikindum. Viðhaldi eigna sinnt: Lítið viðhald kostar stærra viðhald ef það fær að bíða. Uppbygging nýsköpunar: Aukið samtal við ríkið, önnur sveitarfélög og fyrirtæki varðandi uppbyggingu og nýsköpunarverkefni í Skagafirði (Hólaskóli, lífræn ræktun, nýting lífrænna hráefna og annars úrgangs, osfrv.) Innleiða innkaupastefnu: Nýta daglegan rekstur til að styðja við uppbyggingu og rekstur, t.d með keyptu hráefni af skagfirskum framleiðendum. Og við eigum meira í pokahorninu.. Höfundur er varamaður í sveitastjórn og tilvonandi oddviti Byggðalistans í Skagafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skagafjörður Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun