Enski boltinn

Rosenior rekinn frá Chelsea

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Liam Rosenior hefur lokið af sér störfum á Stamford Bridge. 
Liam Rosenior hefur lokið af sér störfum á Stamford Bridge.  Getty/Gareth Fuller

Liam Rosenior hefur verið látinn fara úr starfi aðalþjálfara hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea greinir frá þessu í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins. 

Rosenior kom til Chelsea frá systurfélaginu Strasbourg. Hann tók við starfinu af Enzo Maresca fyrir tæpum fjórum mánuðum, eða 107 dögum síðan, og skrifaði undir sex ára samning við félagið.

Hann fór vel af stað en síðan hefur hallað verulega undan fæti og Chelsea hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum. 

Undir stjórn Rosenior datt Chelsea úr leik í deildabikarnum og Meistaradeildinni, í gærkvöldi tapaði liðið svo fimmta deildarleiknum í röð (3-0 gegn Brighton). 

Chelsea hefur ekki heldur skorað mark í síðustu fimm deildarleikjum en það er í fyrsta sinn síðan árið 1912 sem það gerist.

Rosenior skilur við Chelsea í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og möguleikar liðsins á Meistaradeildarsæti fara dvínandi. 

Callum McFarlane mun stýra Chelsea það sem eftir lifir leiktíðar. Næsti leikur liðsins er á sunnudag gegn Leeds í FA bikarnum.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn

Chelsea tapaði í gærkvöld fimmta leiknum í röð í ensku úrvalsdeildinni, án þess að skora mark, en það hefur ekki gerst síðan árið 1912, þegar Titanic sökk. Mörkin úr sigri Brighton má nú sjá á Vísi ásamt svörum Liams Rosenior, stjóra Chelsea, eftir tapið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×