Verk að vinna Elsa María Guðmundsdóttir skrifar 23. apríl 2026 11:02 List- og verkgreinakennsla í grunnskólum Akureyrarbæjar er alls konar. Það getur verið styrkleiki að hafa fjölbreytni en í þessu tilfelli er frekar um að ræða viðbragð við vöntun á hæfum kennurum, bágri aðstöðu eða hreinlega fjárskorti. Aðstöðumunur milli skóla er mjög mikill, allt frá endurnýjaðri, mjög góðri aðstöðu til ófremdarástands eða jafnvel engrar aðstöðu. Hér er ekki gætt að jafnræði og rétti nemenda til náms. Hér er verk að vinna. Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla eru til staðar viðmið um tímafjölda þessara greina. Ekki er um að ræða bindandi ákvæði heldur hafa skólar ákveðið frelsi til að útfæra tíma. Í flestum skólum í sveitarfélaginu er helstu greinar kenndar s.s. sjónlistir, hönnun og smíðar, textílmennt og heimilisfræði. Tónmennt stendur höllum fæti, dans og sviðslistir eru oftast hliðargreinar. Þær fléttast inn í önnur verkefni eða eru tekin inn sem stutt átaksverkefni þegar unnið er að árshátíðum eða öðrum skemmtunum. Viljum við hafa þetta svona? Hvar blómstra nemendur sem fóta sig ekki vel í bóklegum greinum? Eru skólarnir að gæta jafnræðis þegar kemur að því að uppfylla skyldur sínar samkvæmt námskrá? Þetta eru knýjandi spurningar og við þurfum að bretta upp ermar því hér er mikið verk að vinna. Grunnskólar Akureyrarbæjar þurfa skýra stefnu um hvert skuli stefna í list og verkgreinum. Það þarf að hafa metnað og skilning á því að greinarnar skipta jafn miklu máli og annað nám í grunnskóla. Við getum ekki í öðru orðinu rætt um mikilvægi skapandi hugsunar og sköpunar ef við látum það ekki birtast í verki. Á mannamáli kallast það tvískinnungur. Í tilvonandi nýrri menntastefnu þarf þetta að vera skýrt, með tímasettum og fjármögnuðum aðgerðum. Samfylkingin á Akureyri er klár í það verkefni. Höfundur er sjónlistakennari í grunnskóla á Akureyri og skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
List- og verkgreinakennsla í grunnskólum Akureyrarbæjar er alls konar. Það getur verið styrkleiki að hafa fjölbreytni en í þessu tilfelli er frekar um að ræða viðbragð við vöntun á hæfum kennurum, bágri aðstöðu eða hreinlega fjárskorti. Aðstöðumunur milli skóla er mjög mikill, allt frá endurnýjaðri, mjög góðri aðstöðu til ófremdarástands eða jafnvel engrar aðstöðu. Hér er ekki gætt að jafnræði og rétti nemenda til náms. Hér er verk að vinna. Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla eru til staðar viðmið um tímafjölda þessara greina. Ekki er um að ræða bindandi ákvæði heldur hafa skólar ákveðið frelsi til að útfæra tíma. Í flestum skólum í sveitarfélaginu er helstu greinar kenndar s.s. sjónlistir, hönnun og smíðar, textílmennt og heimilisfræði. Tónmennt stendur höllum fæti, dans og sviðslistir eru oftast hliðargreinar. Þær fléttast inn í önnur verkefni eða eru tekin inn sem stutt átaksverkefni þegar unnið er að árshátíðum eða öðrum skemmtunum. Viljum við hafa þetta svona? Hvar blómstra nemendur sem fóta sig ekki vel í bóklegum greinum? Eru skólarnir að gæta jafnræðis þegar kemur að því að uppfylla skyldur sínar samkvæmt námskrá? Þetta eru knýjandi spurningar og við þurfum að bretta upp ermar því hér er mikið verk að vinna. Grunnskólar Akureyrarbæjar þurfa skýra stefnu um hvert skuli stefna í list og verkgreinum. Það þarf að hafa metnað og skilning á því að greinarnar skipta jafn miklu máli og annað nám í grunnskóla. Við getum ekki í öðru orðinu rætt um mikilvægi skapandi hugsunar og sköpunar ef við látum það ekki birtast í verki. Á mannamáli kallast það tvískinnungur. Í tilvonandi nýrri menntastefnu þarf þetta að vera skýrt, með tímasettum og fjármögnuðum aðgerðum. Samfylkingin á Akureyri er klár í það verkefni. Höfundur er sjónlistakennari í grunnskóla á Akureyri og skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar.
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar