Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 09:32 Það voru smálæti á hliðarlínunni eftir að brot var dæmt á Þórsara í vítateig Fram. Sýn Sport Þjálfarar í Bestu deildinni gætu þurft að passa sig betur en ella á hvað þeir öskra á nýjum heimavelli Þórs, eins og heyra mátti í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gærkvöld.
Þórsarar fögnuðu frábærum 1-0 sigri gegn Fram í frumraun sinni á nýja vellinum. Nokkur hiti var í þjálfarateymum liðanna þegar Þórsarar voru ósáttir við að dæmt væri brot á þá í vítateig Framara. Mátti þá heyra ansi hávær öskur þegar fjórði dómari virðist staðfesta að brot hafi verið dæmt. „Á hvern?!? Þeir klessa saman! Þú sérð það sjálfur!“ heyrðist meðal annars en brot úr Stúkunni má sjá hér að neðan. Klippa: Stúkan - Læti í þjálfurunum Albert Brynjar Ingason spurði svo kollega sinn, Halldór Árnason fyrrverandi þjálfara Breiðabliks, hvernig honum hefði fundist það þegar svona öskur væru tekin fyrir í sjónvarpi. „Ég er svo sjóaður. Þekki vellina eins og hjá KA og svona, þar sem allt heyrist. Þá setti maður upp leikþátt,“ sagði Halldór laufléttur. Alberti og Kjartani Atla Kjartanssyni var einnig skemmt. „Það er alltaf ein setning þarna sem ég heyrði Sigga Höskulds [þjálfara Þórs] segja 2-3 sinnum: „Djöfull er þetta lélegt!““ sagði Albert léttur en þáttinn í heild má finna í vefsjónvarpi Sýnar og á Sýn+.
Besta deild karla Þór Akureyri Fram Stúkan Tengdar fréttir Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk KR-ingar eru með fullt hús stiga og búnir að skora 14 mörk eftir fyrstu þrjár umferðir Bestu deildar karla í fótbolta. Mörkin úr 3. umferðinni má sjá á Vísi. 24. apríl 2026 07:54 Mest lesið Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Sjá meira
Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk KR-ingar eru með fullt hús stiga og búnir að skora 14 mörk eftir fyrstu þrjár umferðir Bestu deildar karla í fótbolta. Mörkin úr 3. umferðinni má sjá á Vísi. 24. apríl 2026 07:54