Mendoza valinn fyrstur í nýliðavalinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 24. apríl 2026 10:30 Fernando Mendoza á að koma liði Raiders aftur á lappir. vísir/getty Nýliðaval NFL-deildarinnar hófst í nótt er fyrstu 32 leikmennirnir voru valdir inn í deildina. Nýliðavalið heldur svo áfram næstu daga.
Það kom ekkert á óvart að Las Vegas Raiders skildi velja leikstjórnandann Fernando Mendoza fyrstan í valinu. Mendoza leiddi Indiana Hoosiers til meistaratitils í háskólaboltanum síðasta vetur og sjálfur fékk hann Heisman-verðlaunin eftirsóttu fyrir að vera besti leikmaður háskólaboltans. New York-liðin völdu bæði sterka varnarmenn en Arizona valdi hlauparann Jeremiyah Love með sínu þriðja vali. Einstakur hæfileikmaður þar á ferðinni. Fyrsta óvænta valið kom snemma er Tennessee Titans valdi útherjann Carnell Tate með fjórða valinu. Það þótti djarft val enda langt frá því að allir séu á því að hann hafi verið besti útherjinn í valinu. Leikstjórnandi Titans, Cam Ward, fær þó nýtt vopn og ekki veitir af. All 32 picks from Round 1 📈 pic.twitter.com/xDEHAXQcMM— NFL (@NFL) April 24, 2026 Óvæntasta val kvöldsins kom aftur á móti í þrettánda valinu er LA Rams valdi leikstjórnandann Ty Simpson. Eitthvað sem enginn átti von á. Frábær leikstjórnandi og Rams augljóslega að hugsa til framtíðar. Rams er aftur á móti með Matthew Stafford sem leikstjórnanda og sá var valinn besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð. Sean McVay, þjálfari Rams, ætlar sér að stefna á titil næsta vetur og það var augljóst að hann var brjálaður yfir þessu vali. Hann vildi fá nýtt sóknarvopn sem myndi hjálpa liðinu að fara alla leið. Philadelphia Eagles kom á óvart er liðið náði að moka sér ofar í valinu til þess að velja útherjann Makai Lemon. Hann var í símtali við Pittsburgh Steelers sem ætlaði að velja hann en Eagles stal honum. Þetta skref Eagles þýðir líklega að tíma AJ Brown hjá Eagles sé lokið. Dallas Cowboys hefur síðustu ár verið með svarta beltið í að klúðra nýliðavalinu en þeir fengu mikið hrós fyrir sína frammistöðu í nótt en Dallas valdi tvisvar í fyrstu umferðinni.
NFL Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Sjá meira