Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Þórarinn Þórarinsson skrifar 24. apríl 2026 11:55 Gunnar Smári Egilsson er ákveðinn í að endurheimta anda sinn og orku í sumar en hann glímir enn við eftirköst þeirra alvarlegu veikinda sem hafa í tvígang lagt hann inn á hjartadeild. Vísir/Anton Brink Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og prímus mótor Samstöðvarinnar, glímir enn við afleiðingar þeirra alvarlegu veikinda sem hafa í tvígang lagt hann inn á hjartadeild. Þeim sem í sumarbyrjun forvitnast um líðan hans segist hann hafa það „skítt og lagó“ en hann verði góður í sumar. „
Ég sagði ykkur frá því um daginn þegar ég lagðist inn á hjartadeild tvívegis og fólk spyr mig því oft hvernig ég hafi það, sum um leið og þau óskuðu mér góðs sumars í gær. Skítt og lagó, svara ég, en ég verð góður í sumar,“ skrifar Gunnar Smári á Facebook í dag þegar hann reynir að greina ástand sitt og framtíðarhorfur.Hann segir þetta lýsa hugarástandi. Hann hvorki veit né skilur hvernig honum líður í dag en hann trúi því að hann verði jafn góður aftur. Ekki seinna en í sumar. „Ég fann að ég var úthvíldur þegar ég vaknaði í morgun, teygði úr mér og fann líf í skrokknum, þetta afl sem getur öllu breytt, er eins og útibú frá sólinni. Undanfarið hef ég ekki fundið þennan neista, hef lifað í því rotnandi holdi sem þetta hylki er sem fóstrar líf okkar en drepur okkur á endanum.“ Gunnar Smári lagðist, eftir bakslag í lyfjameðferð, öðru sinni inn á hjartadeild Landspítalans seinni hluta mars og sagði þá útséð með að hann yrði með viðtöl fyrir páska á Samstöðinni þar sem fjarvera hans hefur verið tilfinnanleg.Hann segist síðan hafa fengið flensu sem varð til þess að árangur meðferðarinnar gekk til baka þannig að hann hrökk aftur úr takti og hefur ekki verið jafn veikur og hann varð þegar hann fékk mislinga tólf ára. Óttast ekki dauðann „Í flensunni var ég með eins og vakandi óráð,“ segir hann um hvernig hann fylgdist með huganum „spinna upp einhverja þráhyggju um skaðlegt blóð og hvernig ég yrði að svara því, án þess að trúa þessu.“Hann hafi ekki getað fundið nýjan hugsunarþráð sem hann gat „lifað innan og séð tilgang og markmið.“ Í þessu ástandi segist hann hafa hugsað: „Guð, svona deyr maður.“ Annars segist Gunnar Smári ekki óttast dauðann. „Hann er eitthvað sem ég mun þurfa að hafa áhyggjur af eftir mörg ár. Einn læknirinn sagði að ég gæti þakkað fyrir að vera ekki dauður, en maður veit aldrei hvað þeir vilja segja þessir læknar. Þeir nota allar aðferðir til að herða fólk og gera það upplitsdjarfara. Að þakka fyrir lífið er besta aðferðin til þess.“ Kominn upp í 23% orku Vandi hans núna sé að hann kunni ekki lengur á sig. Yfir hann hellist samhengislaus mæði og þreyta sem hann viti ekkert hvaðan koma. Hann sofni fimm sinnum yfir daginn, sitjandi í stól eða sófa.„Vélin sem áður gekk svo vel er nú í furðulegum hægagangi. Ég er á 17% orku svaraði ég hjúkrunarfræðingi um daginn. Ég held ég sé kominn upp í 23%, svaraði ég daginn eftir. Það er mikill munur, eitthvað sem má vinna með.“Gunnar Smári segist skrifa þetta í dag til að vita hvort andi hans er með honum. „Ég sakna hans og hlakka til að fá að lifa aftur fullu lífi. Það verður í sumar.“
Fjölmiðlar Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Sjá meira