Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. maí 2026 08:02 Sigfús er oddviti Okkar Borgar. Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Sigfús Aðalsteinsson er oddviti Okkar Borg í Reykjavík. Ég heiti Sigfús og er oddviti Okkar Borgar. Ég kem ekki úr pólitísku kerfi heldur úr raunveruleikanum þar sem ábyrgð, skynsemi og árangur skipta máli. Borgin á að vinna fyrir íbúana. Undanfarin ár hefur verið farið í kostnaðarsöm og umdeild verkefni á meðan grunnþjónusta og daglegt líf fólks situr eftir. Það þarf að breytast. Við viljum skera niður óþarfa í kerfinu, setja skýrari forgang og stöðva ákvarðanir sem ganga gegn hagsmunum íbúa. Sérstaklega þarf að endurmeta stór samgönguverkefni sem eru bæði dýr og umdeild. Ég stend fyrir hreinskilni, ábyrgð og fókus á það sem skiptir fólk raunverulega máli. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Flóahreppur – rólegt umhverfi og gott að vera þar.“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Reykjavík um 1900 í augum Benedikts Gröndal“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Af nógu er að taka – myndi byrja á millistjórn og þenslu í kerfinu.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Í barna- og unglingastarf þar sem þörfin er mest.“ Með barnabarninu á góðri stund.Aðsend Hver væri titill ævisögu þinnar? „Fúsi fast.“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Nota bæði – fer eftir aðstæðum.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Engin – við erum samstíga.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Eitthvað sem nýtist beint í betri ákvarðanatöku.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Að stöðva Borgarlínu.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Að safna og greina upplýsingar um brotastarfsemi.“ Sigfús og eiginkona hans í golfi, sem þeim þykir frábært sport.Aðsend Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Með þeim sem eru tilbúnir að vinna að okkar stefnumálum – það eru síður flokkar til vinstri.“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Mörg – en ég hef lært af þeim öllum.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? Það er margt gott, en það þarf líka að laga ansi margt.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Borða yfirleitt ekki morgunmat.“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Óraunhæfar ákvarðanir og eyðilegging á borgarumhverfinu.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Að snúa við þróuninni og koma rekstrinum á réttan kjöl.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Talað við gluggann með Bubba Morthens“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Óhófleg þétting byggðar, samgöngur setnar til hliðar og Borgarlínan keyrð áfram þrátt fyrir gagnrýni.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Siffi – festist við mig þegar ég var yngri.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Öll sem við setjum fram.“
Oddvitaáskorunin Okkar borg Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Sahara Ray látin Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Richard Riehle látinn Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira