Körfubolti

Ó­trú­legur LeBron leiddi Lakers til sigurs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
LeBron James skýtur yfir Alperen Sengün í þriðja leik Houston Rockets og Los Angeles Lakers. LeBron kom leiknum í framlengingu með því að setja niður þriggja stiga skot á ögurstundu.
LeBron James skýtur yfir Alperen Sengün í þriðja leik Houston Rockets og Los Angeles Lakers. LeBron kom leiknum í framlengingu með því að setja niður þriggja stiga skot á ögurstundu. getty/Kenneth Richmond

Útlitið var ekki bjart hjá Los Angeles Lakers þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum gegn Houston Rockets í átta liða úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. En tveir reyndustu leikmenn Lakers komu liðinu í framlengingu þar sem það tryggði sér svo sigur og komst 3-0 yfir í einvíginu.

Houston var sex stigum yfir, 101-95, og með boltann þegar hálf mínúta var eftir af leiknum. Þá stal Marcus Smart boltanum og síðan var brotið á honum í þriggja stiga skoti. Hann setti öll vítin ofan í og minnkaði muninn í þrjú stig, 101-98.

Í næstu sókn Houston stal LeBron James boltanum og setti í kjölfarið niður þriggja stiga skot og jafnaði, 101-101. Skot Alperens Sengün, miðherja Houston, geigaði svo og Lakers fékk tækifæri til að tryggja sér sigurinn. Þriggja skot LeBrons geigaði hins vegar og því þurfti að framlengja.

Lakers reyndist sterkari aðilinn í framlengingunni, vann hana, 11-7, og leikinn, 108-112. Liðið vantar nú aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Vesturdeildarinnar.

Hinn 41 árs LeBron hefur farið mikinn eftir að Luka Doncic og Austin Reaves meiddust og borið þyngstu byrðarnar í sóknarleik Lakers. Í nótt skoraði LeBron 29 stig, tók þrettán fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum þrisvar sinnum. Smart skoraði 21 stig, þar af átta í framlengingunni. Rui Hachimura var með 22 stig og hitti úr átta af fjórtán skotum sínum.

Sengün skoraði 33 stig, tók sextán fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum þrisvar sinnum fyrir Houston sem lék án Kevins Durant í nótt. Varamenn Houston skoruðu aðeins þrjú stig í leiknum á meðan varamenn Lakers skiluðu 24 stigum.

San Antonio Spurs náði forystunni í einvíginu gegn Portland Trail Blazers í Vesturdeildinni með 108-112 sigri í nótt. 

Victor Wembanyama lék ekki með San Antonio en það kom ekki að sök. Stephon Castle skoraði 33 stig og nýliðinn Dylan Harper 27 stig auk þess að taka tíu fráköst. Jrue Holiday skoraði 29 stig fyrir Portland.

Þá sigraði Boston Celtics Philadelphia 76ers á útivelli í Austurdeildinni, 100-108. Jaylen Brown og Jayson Tatum skoruðu 25 stig hvor fyrir Celtics sem er 2-1 yfir í einvíginu. Tyrese Maxey skoraði 31 stig fyrir Sixers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×