Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. apríl 2026 18:32 Flestir geta líklega fallist á að Arnar Pálsson, prófessor, við Háskóla Íslands hafi unnið þakklátt starf síðustu þrjú sumur. Hann hefur reynt að finna klakstöðvar lúsmýs til þess að sporna við útbreiðslu bitvargsins. vísir/samsett Hópur líffræðinga hefur undanfarin þrjú sumur gert atlögu að miklu þjóðþrifaverki - að finna klakstöðvar lúsmýsins til þess að unnt sé að sporna við útbreiðslu þess. Þrátt fyrir að gildrur hafi verið lagðar víða um land er enn fátt um svör. Prófessor segir fluguna mikinn tækifærissinna.
Sumarið er handan við hornið og hinn þjóðkunni vágestur lúsmýið fer þar með líklega bráðum á kreik. Þrátt fyrir að flugan hafi dreift úr sér um land allt á ógnarhraða er í raun lítið vitað um hegðun þess. Arnar Pálsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, hefur síðastliðin þrjú sumur ásamt hópi vísindamanna reynt að breyta því og rannsakað lúsmýið. „Augljósa niðurstaðan er sú að það er mest af þeim á sumrin og mest af þeim í júlí. Það er einhver smá munur á milli ára. Það var til dæmis áberandi mikið af þeim sumarið 2024 en minna sumarið 2025,“ segir Arnar. Hvers vegna viti hann þó ekki. Flugan hafi einungis verið hér í rúman áratug og því sé enn erfitt að slá því föstu hvort veðurskilyrði yfir veturinn hafi úrslitaáhrif. „Það voru færri flugur í fyrrasumar. Var það að enduspegla harðan vetur þar á undan eða einhvers konar hitasveiflur? Þessi vetur hefur verið forvitnilegur þannig við getum ekki alveg sagt til um það hvort það verði gott eða lélegt lúsmýsumar í ár.“ Fýlugildur virki best Hópurinn hefur komist að ýmsu, líkt og að svokallaðar fýlugildrur virki best á fluguna, það er að segja gildrur sem losa koltvísýring og líkja eftir líkamslykt mannfólks. Arnar segir það geta hjálpað til í baráttunni við lúsmýið að vera með slíka gildru á veröndinni eða svölunum. Að sögn Arnar tilheyrir lúsmýið fjölskyldu sem um fjögur þúsund skyldar flugur tilheyra og lítið er vitað um allar tegundirnar. Klakstöðvar einhverra eru í skurðum eða rotþróm en ekki er vitað hvað þær nýta hér á landi.vísir/Vilhelm Sá hluti rannsóknarinar er snýr að því að finna klakstöðvarnar hefur hins vegar engu skilað. „Við höfum lagt gildrur ansi víða; í graslendi, mólendi, runnagróðri og lúpínubreiðum, í vatnsyfirborði og mýrlendi en við höfum ekki fundið eina einustu flugu í þeim gildrum. Einhvers staðar eru þær að fjölga sér en við höfum bara ekki fundið neinn reit sem þær eru að klekjast upp úr.“ Vonir stóðu til þess að hægt væri að finna klakstöðvarnar til þess að hægt væri að fækka flugunum, líkt og gert sé með moskítóflugur víða erlendis. Arnar segir lúsmýið mikinn tækifærissinna og að hröð útbreiðsla skýrist meðal annars af því að þær ferðist með fólki. Þjóðarátak Rannsóknin hefur hingað til verið unnin með stuðningi Rannís og Arnar segir henni verði ekki haldið áfram í sumar - þrátt fyrir að stóru spurningunni sé enn ósvarað. „Náttúrufræðistofnun er að fylgjast með á nokkrum stöðum þannig að þau geta allavega sér dreifinguna og fjölda flugna. En með klakstöðvarnar að þá þarf náttúrulega bara eitthvað þjóðarátak til þess að takast á við það,“ segir Arnar kíminn. „Við erum tilbúin að taka þátt í því auðvitað.“
Lúsmý Vísindi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Sjá meira