Skapandi greinar: lykill að nýsköpun Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar 27. apríl 2026 13:02 Eftir að hafa séð fremur rýran hlut skapandi greina í nýrri atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar þá er gott að sjá þær dregnar fram í samhengi við nýsköpun á hliðarviðburði á Nýsköpunarviku sem er hafin. Við gerð atvinnustefnunnar var sláandi að skapandi greinar voru ekki inni í upphaflegum drögum. Í lokaútgáfu eru þær síðan settar fram eins og undirgrein ferðamála – sem hluti af upplifunargeira. Þar er „áhersla á vöxt útflutnings í skapandi greinum með mikla framleiðni“. Í þeirri framsetningu yfirsést höfundum stefnunnar sá nýsköpunarhvati sem felst í skapandi greinum og liggur þvert á hagkerfið og samfélagið. Um leið er litið fram hjá því að sjálfbærni byggir á samspili efnahagslegra, samfélagslegra og menningarlegra áhrifa. Mælingarnar einar og sér sýna ekki allt sem skiptir máli. Sífellt fleiri rannsóknir benda til þess að innviðir nýsköpunar felist meðal annars í öflugu menningarlífi og skapandi greinum. Þær gegna lykilhlutverki í að tengja saman tækni, menningu og samfélag og skapa þannig nýjar lausnir, nýja merkingu og nýja markaði. Um leið stuðla þær að samheldni og skilningi, sem er forsenda þess að samfélög geti vaxið og dafnað með sjálfbærni að leiðarljósi. Viðvörunarljós Skapandi hagkerfið á Íslandi hefur vaxið hratt og nær til verulegs hluta vinnumarkaðarins, þar sem skapandi störf spanna bæði hefðbundnar greinar og nýjar þjónustugreinar. Sérstaðan felst einmitt í því að skapandi hæfni dreifist þvert á atvinnulífið. Samdráttur í starfandi í skapandi greinum er til marks um að viðvörunarljós hafa kviknað. Við þurfum að skoða hvernig stoðkerfið okkar virkar og rýna betur hvað tapast með samdrætti. Hvernig geta geirinn og stjórvöld brugðist við. Það þarf sífellt að stuðla að öflugri listsköpun til að geta staðið undir nafni sem nýsköpunarsamfélag. Vöxtur á útflutningi verður aldrei samfelldur ef ekki er hugað að sprotunum í víðtæku samhengi. Vorboðinn Það er því góður vorboði að sjá þessa umræðu kvikna. Vonandi þýðir það einnig að aðgerðaráætlunin sem fylgir atvinnustefnu verði uppfærð til gagns og með skýrari sýn á hlutverk skapandi greina sem drifkrafts í samfélaginu. Lengi hefur verið kallað eftir heildstæðri sýn varðandi samspil skapandi greina og nýsköpunar. Það er því sérstaklega jákvætt að sjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti setji hjarta á milli þessara tveggja lykilþátta hagsældar í samfélaginu. Það er viðurkenning á margþættu hlutverki skapandi greina í samfélaginu. Höfundur er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður stjórnar Rannsóknasetursskapandi greina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nýsköpun Mest lesið Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Skoðun Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira