Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Lovísa Arnardóttir skrifar 27. apríl 2026 14:19 Nýr meirihluti tók við í Reykjavík fyrir rúmu ári síðan. Vísir/Vilhelm Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta ársreiknings Reykjavíkurborgar er jákvæð um átta milljarða króna en niðurstaðan af rekstri A-hluta var neikvæð um ríflega fimm milljarða. Helsta skýring neikvæðrar niðurstöðu er sögð mikil hækkun lífeyrisskuldbindinga auk þess sem mikil verðbólga og óvissa á atvinnumarkaði leiddu til hægari vaxtar útsvarsgreiðslna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg um ársreikninginn. Þar kemur einnig fram að rekstur málaflokka og þjónusta hafi verið í jafnvægi og í takt við áætlanir. Í tilkynningu kemur jafnframt fram að rekstrarniðurstaða A-hluta hafi verið neikvæð um 5,3 milljarða króna á árinu 2025 sem hafi verið 5,7 milljörðum undir áætlaðri niðurstöðu. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu Reykjavíkurborgar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 var lagður fyrir borgarráð í dag, 27. apríl, og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn á morgun, 28. apríl. Þróun hafi bein áhrif á tekjustofna Í tilkynningu sem fylgdi til kauphallar kemur fram að rekstrarumhverfi Reykjavíkurborgar hafi á síðustu mánuðum tekið talsverðum breytingum í kjölfar þess að þensla í þjóðarbúinu hefur minnkað. Verðbólga hafi reynst þrálát og hagvöxtur hóflegur. Dregið hafi úr spennu á vinnumarkaði og atvinnuleysi sé að aukast, með vísbendingum um áframhaldandi veikingu atvinnuhorfa. „Þessi þróun hefur bein áhrif á tekjustofna Reykjavíkurborgar. Hægari vöxtur efnahagsumsvifa og aukin óvissa á vinnumarkaði dregur úr vexti útsvarstekna, á sama tíma og kostnaðarþrýstingur vegna launa og verðlags er áfram til staðar,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að aðgerðir borginnar á húsnæðimarkaði hafi verið áberandi á síðasta ári. Stutt hafi áfram við óhagnaðardrifin félög til uppbyggingar á hagkvæmu leiguhúsnæði og hafinn undirbúningur að því að hraða uppbyggingu á nýju landi Halla í Úlfarsárdal. Í mars hafi verið undirritað samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um rekstur úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda og ríkið tekið alfarið ábyrgð á þjónustunni frá og með áramótum. Þá hafi verið innleiddar skipulagsbreytingar á sviði eigna- og viðhaldsstjórnunar og skipulags- og byggingaferla til að bæta skilvirkni og þjónustu við ytri og innri hagaðila. Á velferðarsviði var ráðist í umtalsverðar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri málaflokks fatlaðs fólks til að stuðlað að aukinni skilvirkni. Á skóla- og frístundasviði var nýtt fjármögnunar- og rekstrarlíkan leikskóla, Snorri, tekið í notkun. Í samstæðu borgarinnar gætti einkum áhrifa af rekstrarfalli Norðuráls sem hafði neikvæð áhrif á afkomu tengdra félaga, þar á meðal Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna. Lakari niðurstaða vegna lífeyrisskuldbindinga Í tilkynningu um ársreikninginn segir að rekstrarniðurstaðan hafi verið um 2,7 milljörðum krónum lægri en árið 2024. Lakari niðurstöðu megi einkum rekja til gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga sem hafi numið 9,9 milljörðum króna á árinu 2025. Rekstrarniðurstaða fyrir skatta, matsbreytingar og áhrif hlutdeildarfélaga hafi engu að síður verið jákvæð um 2,5 milljarða króna. Matsbreyting fjárfestingaeigna Félagsbústaða hafði jákvæð áhrif á niðurstöðu rekstrar og nam 8,3 milljörðum króna. Í samstæðu borgarinnar hafu einkum gætt áhrifa af rekstrarfalli Norðuráls sem hafði neikvæð áhrif á afkomu tengdra félaga, þar á meðal Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahafna. Þá kemur fram í tilkynningu að heildareignir A- og B-hluta samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi 31. desember 2025 voru yfir eitt þúsund milljarðar króna eða 1.038 milljarðar og heildarskuldir ásamt skuldbindingum námu 560,5 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall A- og B-hluta í árslok var 46,0 prósent. Eigið fé A- og B-hluta hækkaði um 23,5 milljarða milli ára sem má rekja til jákvæðrar rekstarniðurstöðu, endurmats á framleiðslu- og dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur og hækkunar lóðamats sem skatttekjur reiknast af hjá A-hluta. Veltufé frá rekstri nam 42,9 milljörðum króna, eða 14,6 prósentum af tekjum. Fjárfestingar (brúttó) námu 64 milljörðum eða 21,8 prósentum af tekjum. Ráðstafað var sex milljörðum krónum meira til fjárfestinga í samstæðu borgarinnar árið 2025 en árið 2024. Handbært fé nam 30,8 milljörðum í lok árs. Í tilkynningu kemur jafnframt fram að rekstrarniðurstaða A-hluta hafi verið neikvæð um 5,3 milljarða króna á árinu 2025 sem hafi verið 5,7 milljörðum undir áætlaðri niðurstöðu. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga vegna R-deildar Brúar lífeyrissjóðs nam 9,9 milljörðum króna á árinu og vó þyngst í fráviki rekstrar. Grunnreksturinn, það er að segja rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA), var jákvæð um 7,3 milljarða króna samkvæmt tilkynningu og rekstur málaflokka A-hluta í jafnvægi þegar horft er til fjárhagsáætlana fagsviða fyrir árið. Veltufé frá rekstri nam 14,3 milljörðum króna og var 6,9 prósent í hlutfalli af tekjum og hækkaði um 0,6 prósentustig á milli ára. Skuldaviðmið A-hluta í árslok 2025 var 80 prósent. Kennitölur fjármálastefnu sýndu allar jákvæða þróun samkvæmt tilkynningu ef undan eru skilin áhrif lífeyrisskuldbindinga á jafnvægi í rekstri. Í tilkynningu segir að mikla hækkun lífeyrisskuldbindinga megi einkum rekja til þess að vísitala lífeyrisskuldbindinga, sem mælir launaþróun á opinberum markaði, og skylt er að nýta við tryggingafræðilegt mat áfallinna skuldbindinga, hækkaði um 11,7 prósent á árinu 2025. Á móti kemur að eignir sjóðsins samkvæmt tryggingafræðilegu mati standa í stað á milli ára öfugt við árið 2024, þar sem raunávöxtun þeirra er undir 3,5 prósenta viðmiði samkvæmt reglugerð um skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Rekstrarumhverfi borgarinnar hefur tekið talsverðum breytingum síðustu mánuði samkvæmt tilkynningu. Vísir/Vilhelm Í rekstrarreikningi ársins eru færðar til gjalda aukalega 450 milljónir króna vegna samnings Reykjavíkurborgar og íslenska ríkisins frá árinu 2004 um þátttöku í kostnaði við nauðsynlega uppbyggingu bílastæða og bílastæðahúsa innan lóða LHS. Ýmis mál vegna uppbyggingar á Landspítalareit eru ófrágengin á milli NLSH ohf. og borgarinnar sem gætu komið til tekna á móti gjaldfærslunni. Tekjur A-hluta námu 206,6 milljörðum króna og hækkuðu um 12,1 milljarð eða 6,2 prósent. Staðgreiðsla útsvars hækkaði um 9,3 milljarða króna borið saman við árið 2024 eða um sjö prósent. Tekjur af sölu byggingarréttar sem færast á greiðslugrunni námu 3,4 milljörðum króna á árinu. Þá segir að fjölmargir uppbyggingarsamningar hafi verið gerðir á árinu 2025 sem hafa ekki komið til tekna. Launagjöld meiri vegna kjarasamninga Laun og annar rekstrarkostnaður án lífeyrisskuldbindinga nam 189,5 milljörðum króna og hækkaði um sjö prósent á milli ára samkvæmt tilkynningu. Launaútgjöld hækkuðu um 8,4 milljarða króna eða um 8,1 prósent en samkvæmt tilkynningu höfðu nýir kjarasamningar nokkur áhrif á það. Heildareignir A-hluta samkvæmt efnahagsreikningi 31. desember 2025 námu samtals 308,7 milljörðum króna og heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 221,7 milljarðar króna. Eigið fé nam 87 milljörðum. Eiginfjárhlutfall nam 28%. Fjárfestingar ársins beindust að uppbyggingu, viðhaldi og endurnýjun skóla og leikskóla og innviðum gatna. Lántaka Reykjavíkurborgar lækkaði á milli ára og það sama gildir um afborganir af langtímalánum.
Reykjavík Kjaraviðræður 2023-25 Efnahagsmál Lífeyrissjóðir Uppgjör og ársreikningar Rekstur hins opinbera Mest lesið Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira