Hvert fóru þessir tíu milljarðar? Þorvaldur Daníelsson skrifar 27. apríl 2026 23:30 Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 vekur upp einfalda en óþægilega spurningu. Á aðeins einu ári hefur rekstur borgarinnar snúist úr tæplega 5 milljarða afgangi í 5,3 milljarða tap. Munurinn er um tíu milljarðar króna! Það kallar á skýringar. Þegar Framsókn tók þátt í meirihluta borgarstjórnar skilaði rekstur borgarinnar jákvæðri niðurstöðu. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Það var vegna markvissrar fjármálastjórnar, aðhalds og skýrrar forgangsröðunar. Nú, aðeins ári síðar, skila svokallaðir samstarfsflokkar í borgarstjórn 5 milljarða tapi. Spurningin sem blasir við er einföld: hvert fóru peningarnir? Var þjónustan bætt með afgerandi hætti? Hafa innviðir borgarinnar tekið miklum framförum? Eru færri holur í götunum? Eru biðlistar eftir leikskólaplássi styttri? Finna borgarbúar raunverulega fyrir tíu milljarða króna mun í sínu daglega lífi? Flestir Reykvíkingar myndu líklega eiga erfitt með að svara því játandi. Það er auðvelt að tala um metnað og framtíðarsýn og nota stór orð. Rekstur sveitarfélags snýst á endanum um ábyrga notkun á almannafé. Tíu milljarðar hverfa ekki sporlaust. Samstarfsflokkarnir í borgarstjórn þurfa að svara því með skýrum hætti hvernig þessi staða kom upp. Ekki með almennum yfirlýsingum eða pólitískum frösum. Reykvíkingar eiga rétt á svörum. Þeir eiga líka rétt á ábyrgri fjármálastjórn. Borgin er ekki tilraunastofa fyrir pólitískar hugmyndir sem enginn ber síðan ábyrgð á þegar reikningurinn kemur, sbr. leikskólann Brákarborg sem er að kosta borgina hátt í 4 milljarða króna! Sá reikningur lendir á endanum alltaf hjá borgarbúum í formi hærri gjalda, lakari þjónustu eða verri fjárhagsstöðu til framtíðar. Við í Framsókn skiluðum tæplega 5 milljarða afgangi með Einar Þorsteinsson sem borgarstjóra. Núna skila samstarfsflokkarnir 5,3 milljarða tapi. Í hvað fóru þessir 10 milljarðar? Ekki finn ég fyrir bættri þjónustu eða færri holum í götunum. Er ekki bara best að kjósa Framsókn? Setjum X við B. Höfundur er í 3. sæti á lista Framsóknar í komandi borgarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Daníelsson Framsóknarflokkurinn Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Skoðun Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 vekur upp einfalda en óþægilega spurningu. Á aðeins einu ári hefur rekstur borgarinnar snúist úr tæplega 5 milljarða afgangi í 5,3 milljarða tap. Munurinn er um tíu milljarðar króna! Það kallar á skýringar. Þegar Framsókn tók þátt í meirihluta borgarstjórnar skilaði rekstur borgarinnar jákvæðri niðurstöðu. Það gerðist ekki af sjálfu sér. Það var vegna markvissrar fjármálastjórnar, aðhalds og skýrrar forgangsröðunar. Nú, aðeins ári síðar, skila svokallaðir samstarfsflokkar í borgarstjórn 5 milljarða tapi. Spurningin sem blasir við er einföld: hvert fóru peningarnir? Var þjónustan bætt með afgerandi hætti? Hafa innviðir borgarinnar tekið miklum framförum? Eru færri holur í götunum? Eru biðlistar eftir leikskólaplássi styttri? Finna borgarbúar raunverulega fyrir tíu milljarða króna mun í sínu daglega lífi? Flestir Reykvíkingar myndu líklega eiga erfitt með að svara því játandi. Það er auðvelt að tala um metnað og framtíðarsýn og nota stór orð. Rekstur sveitarfélags snýst á endanum um ábyrga notkun á almannafé. Tíu milljarðar hverfa ekki sporlaust. Samstarfsflokkarnir í borgarstjórn þurfa að svara því með skýrum hætti hvernig þessi staða kom upp. Ekki með almennum yfirlýsingum eða pólitískum frösum. Reykvíkingar eiga rétt á svörum. Þeir eiga líka rétt á ábyrgri fjármálastjórn. Borgin er ekki tilraunastofa fyrir pólitískar hugmyndir sem enginn ber síðan ábyrgð á þegar reikningurinn kemur, sbr. leikskólann Brákarborg sem er að kosta borgina hátt í 4 milljarða króna! Sá reikningur lendir á endanum alltaf hjá borgarbúum í formi hærri gjalda, lakari þjónustu eða verri fjárhagsstöðu til framtíðar. Við í Framsókn skiluðum tæplega 5 milljarða afgangi með Einar Þorsteinsson sem borgarstjóra. Núna skila samstarfsflokkarnir 5,3 milljarða tapi. Í hvað fóru þessir 10 milljarðar? Ekki finn ég fyrir bættri þjónustu eða færri holum í götunum. Er ekki bara best að kjósa Framsókn? Setjum X við B. Höfundur er í 3. sæti á lista Framsóknar í komandi borgarstjórnarkosningum.
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar