Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Árni Sæberg skrifar 28. apríl 2026 09:22 Bjarni Hauksson, verjandi ákærða í málinu. Ákærði mætti ekki í aðalmeðferðina. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð í máli ungs manns, sem ákærður er fyrir að nauðga barni á leikskólanum Múlaborg í tvígang, er hafin. Hann var starfsmaður á leikskólanum þegar hann er sagður hafa brotið á barninu.
Aðalmeðferðin hófst klukkan 09:15 í morgun og áætlað er að hún standi til klukkan 16. Maðurinn mætti ekki í Héraðsdóm Reykjavíkur og því má ætla að hann muni gefa skýrslu í gegnum fjarfundarbúnað. Ákæra var gefin út í nóvember síðastliðnum. Hann sætir ákæru fyrir að hafa tvisvar sinnum á árinu 2025 á leikskólanum haft önnur kynferðismök en samræði við stúlku. Foreldrar stúlkunnar krefjast sjö milljóna króna Hann hafi misnotaði freklega yfirburðarstöðu sína gagnvart stúlkunni, brugðist trausti hennar og trúnaði sem starfsmaður leikskólans og í annað skiptið jafnframt notfært sér að þannig var ástatt um stúlkuna að hún gat ekki spornað við verknaðnum sökum svefndrunga. Þá segir í ákærunni að fyrir hönd stúlkunnar sé maðurinn krafinn um miskabætur að fjárhæð sjö milljóna króna. Játaði hjá lögreglu en afstaðan liggur ekki fyrir Í gæsluvarðhaldsúrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu, sem kveðnir voru upp í október og nóvember í fyrra kemur fram að framburður mannsins hjá lögreglu hafi samræmst frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. Þinghald í málinu er lokað og engin svör hafa fengist frá Héraðssaksóknara um gang málsins og því liggur afstaða mannsins til sakargifta ekki fyrir. „Punginn í píkuna hennar í leikskólanum“ Í úrskurðunum kemur fram að þriðjudaginn 12. ágúst hafi móðir umrædds barns, sem er stúlka, haft samband við lögreglu vegna málsins. Fyrr um daginn hafði móðirin sótt dóttur sína á leikskólann, sem hafi sagt henni frá því að „svolítið skrýtið“ hefði átt sér stað á leikskólanum. Dóttirin greindi þá móður sinni frá því að tiltekinn starfsmaður leikskólans hefði sett „punginn í píkuna hennar í leikskólanum“. Síðar sama dag, rétt áður en klukkan sló níu að kvöldi til, var maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var tekin skýrsla af honum þar sem hann játaði meira og meira eftir því sem á leið. Réttargæslumaður stúlkunnar og sækjandi málsins.Vísir/Vilhelm Maðurinn var í fyrstu spurður út í samskipti sín við stúlkuna og sagðist hann hafa hjálpað henni á salerninu þennan dag. Svo sagði hann að hún hafi séð hann pissa á starfsmannasalerninu nokkrum sinnum þegar hann hafi gleymt að læsa að sér. Aðspurður frekar út í málið játaði hann að hafa tekið stúlkuna upp, meðan hún var buxnalaus, „snúið henni við þannig hún sneri rassinum að klofi hans og hafi hann gert „hump“ hreyfingar í nokkrar sekúndur.“ Breytt frásögn Hann breytti síðar þeirri frásögn sinni, og viðurkenndi að hafa sett getnaðarlim sinn milli læra stúlkunnar og viðhaft samfarahreyfingar. Að mati lögreglu er þessi frásögn hans talin í samræmi við frásögn brotaþola í Barnahúsi. Jafnframt játaði maðurinn í seinni skýrslutöku að hafa brotið áður gegn stúlkunni. Þegar stúlkan hafi verið sofandi í hvíldarherbergi leikskólans hafi hann dregið niður um hana buxurnar og „sett getnaðarlim sinn á milli læra hennar og viðhaft samfarahreyfingar“. Sem áður segir er reiknað með því að aðalmeðferð ljúki í dag og því má reikna með að dómur gangi innan fjögurra vikna.
Kynferðisbrot á Múlaborg Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Reykjavík Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira