Neuer eignaðist niðurlægjandi met Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. apríl 2026 09:31 Manuel Neuer tókst ekki að verja skot í leik PSG og Bayern Munchen í gærkvöldi. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Ekki nóg með það að Manuel Neuer hafi fengið á sig fimm mörk í gærkvöldi þá varði þýski markmaðurinn ekki eitt einasta skot.
Neuer stóð milli stanganna hjá Bayern Munchen og kom engum vörnum við í 5-4 sigri PSG. Það er met því hann er fyrsti markmaðurinn, síðan mælingar hófust árið 2010, sem fær á sig fimm mörk eða fleiri án þess að verja skot. Enginn hefur fengið jafnmörg mörk á sig án þess að verja skot. „Þú sást mörkin, það er erfitt að verja þessi skot. Ég komst tvisvar nálægt því og held að ég hafi jafnvel snert boltann,“ sagði Neuer sem skutlaði sér vissulega í rétt horn og kom við boltann í vítaspyrnumarki Ousmané Dembélé. Neuer var líka nálægt því að verja skallamark Joao Neves. PSG skaut síðan einu sinni í stöngina en stangarskot Senny Mayulu á 87. mínútu var sannarlega ekki varið. Neuer var ekki nálægt því að verja skotin í hinum mörkunum sem Kvicha Kvaratskhelia, Ousmané Dembélé og Desiré Doué skoruðu. Það er þó illa hægt að kenna markmanninum um það. Sóknarleikur PSG var leiftrandi og skotin snilldarleg. „Að fá á sig fimm mörk er alltaf slæmt fyrir vörn og markmann, við felum okkur ekkert frá því. Nú einbeitum við okkur bara að seinni leiknum,“ sagði Neuer fullur sjálfstrausts. „Ef við erum í toppformi getum við sært þá og augljóslega getum við varist betur.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Belgar á flugi undir stjórn Elísabetar Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Systraþrenna og Ísland er skrefi nær HM: „Ég var smá stressuð“ Ronaldo í bann hjá Portúgal Systurnar saman í byrjunarliði Íslands „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira