Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. apríl 2026 14:00 Björg Magnúsdóttir er oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurborg fyrir komandi borgarstjórnarkosningar og gæti endað í lykilstöðu eftir kosningar. Björg Magnúsdóttir segir að eitt mesta djammviskubit sem hún hafi upplifað hafi hún fengið eftir að hafa fyrir ótrúlega slysni ælt á trefil vinkonu sinnar á djamminu.
Björg rifjaði þetta upp í nýjasta þætti skemmtiþáttarins Af vængjum fram, þangað sem frambjóðendur til borgarstjórnarkosninga mæta og gæða sér á eldsterkum kjúklingavængjum milli þess sem þeir svara krefjandi spurningum á léttari nótum. Þangað mætti hún ásamt Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Ótrúleg tímasetning Í þættinum voru þær Hildur og Björg meðal annars beðnar um að rifja upp versta djammviskubitið. Hjá Björgu stóð ekki á svörum. „Það var á Prikinu og ég er króuð inni, smá eins og núna, ég var „actually“ með Margréti Rósu vinkonu minni sem er í fjórða sæti hjá Viðreisn,“ segir Björg og vísar þar til Margrétar Rósu Sigurjónsdóttur, framkvæmdastjóra Kolaportsins. „Við vorum búin að eiga langt og gott kvöld og ég var króuð inni. Það er eitthvað að gerast og ég finn að ég þarf að fara að létta á maganum. Ég sé röðina, ég fer með hausinn undir borð og ég læt vaða.“ Hvað gerist svo? „Svo gerist það að....Margrét Rós er alltaf ótrúlega fín og falleg til fara, mamma hennar stofnaði Spakmannsspjarir, þannig hún er með 170 þúsund króna trefil og á þessu mómenti þá fer ég undir borð, geri þetta, slengi mér upp og þá missir Margrét Rós rándýra trefilinn sinn undir borð.“ Björg segir þá hafa orðið uppi fótur og fit á Prikinu. Enn þann dag í dag sé hún ekki viss hvort Margrét Rós hafi vitað sannleikann í málinu. „Ég veit ekki hvort hún veit að ég gubbaði....hún missir trefilinn á sama tíma, nær í trefilinn strax upp og það verður einhvern veginn uppi fótur og fit. Þetta er játning. Þetta er bara heiðarlegt.“ Umræddum trefli bregður fyrir í myndbandi Margrétar Rósar á samfélagsmiðlum þar sem hún fer yfir það hvernig skal vera skvísa á hjóli. View this post on Instagram A post shared by Margrét Rós Sigurjónsdóttir (@margretros) Alla þætti í þessari seríu Af vængjum fram má horfa á á myndbandsvef Vísis og á Sýn+. Þættirnir eru sýndir í línulegri dagskrá á Sýn á sunnudagskvöldum klukkan 18:55.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Af vængjum fram Viðreisn Tengdar fréttir Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel. 23. apríl 2026 07:01 „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52 Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira
Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel. 23. apríl 2026 07:01
„Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52