Frábær árangur í bólusetningum gegn mislingum á Íslandi Ingileif Jónsdóttir skrifar 29. apríl 2026 19:33 Mislingar eru bráðsmitandi veirusjúkdómur. Þeir eru ein aðaldánarorsök ungra barna þrátt fyrir að öruggt verndandi bóluefni hafi verið á markaði í áratugi. Allt að 10% barna sem fá mislinga deyja, aðallega þau sem eru vannærð og njóta ekki viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Mislingar geta líka leitt til fylgikvilla, misalvarlegra, sá alvarlegasti er síðkomin hæggeng herslisheilabólga (e. subacute sclerosing panencephalitis) sem getur komið fram seint hjá um einum af hverjum þúsund sem fá mislinga, oftast 7–10 árum eftir mislingasýkinguna og er banvæn. Markmið Átaks gegn mislingum og rauðum hundum (e. Measles & Rubella Initiative) er að fækka dauðsföllum af völdum mislinga um 95% í árslok 2015, miðað við árið 2000, með bólusetningum. Á tímabilinu 2000-2013 jukust mislingabólusetingar barna um 84% og dauðsföllum af völdum mislinga fækkaði um 75% á sama tíma og er talið er að mislingabólusetningar hafi komið í veg fyrir 15,6 milljónir dauðsfalla 2000-2013. Bólusetningar eru árangursríkasta fjárfestingin í lýðheilsu á heimsvísu. Samt deyja börn enn úr mislingum. Árið 2024 létust 94.600 einstaklingar úr mislingum í heiminum, flest börn undir fimm ára aldri, sem er fækkun frá aldamótum, en árið 2001 létust 750,000 börn úr mislingum á heimsvísu. Mislingar brjótast út ef of fáir eru bólusettir, veiran getur þá dreifst milli þeirra sem eru óbólusettir. Árið 2013 voru 21,5 milljón barna ekki bólusett gegn mislingum, 60% þeirra í sex löndum: Indlandi, Nígeríu, Pakistan, Eþíópíu, Indónesíu og Kongó. Sama ár voru 79% dauðsfalla af völdum mislinga í heiminum í sömu sex löndum, flest á Indlandi. Mislingabólusetningar eru árangursríkasta fjárfestingin í lýðheilsu á heimsvísu. Samt deyja börn enn úr mislingum. Árið 2024 var hrundið af stað nýju bólusetningaátaki gegn mislingum og rauðum hundum í 23 löndum. Af þeim 17 löndum sem gerðu rannsókn á árangri átaksins náðist 84% tíðni tveggja bólusetningaskammta að meðaltali. Það er aukning frá því sem áður var, en ekki nóg. Meðal 57 fátækustu landa heims (low-income countries) sem njóta stuðnings Heimssamtaka um bólusetningar (Global Vaccine Alliance, Gavi), jókst hlutfall þeirra sem fengu fyrsta skammt af mislingabóluefni úr 78% árið 2023 í 80% árið 2024, en hlutfall þeirra sem fékk seinni skammt mislingabóluefnis jókst aðeins úr 66% árið 2023 í 70% árið 2024. Talið er að hlutfall þeirra sem fá 2 skammta af mislingabóluefni þurfi að vera a.m.k. 95% til að koma í veg fyrir að mislingar breiðist út og geti orðið að faröldrum. Mynd 1. Fjöldi mislingatilfella í Evrópu (EU/EEA) eftir mánuðum og árum frá 1. janúar 2013 til 28. febrúar 2026. Mislingar brjótast enn út löndum með háar meðaltekjur, þ.m.t. í Evrópu. Mislingatilfelli í Evrópu voru 31.685 árið 2013, og þótt verulega hafi dregið úr þeim greindust enn 4.623 með mislinga á 12 mánaða tímabili (mars 2025 til febrúar 2026) í 30 Evrópulöndum (EU/EEA), þar af voru 1.536 (33.2%) börn undir 5 ára aldri. Sex þeirra létust úr mislingum í Frakklandi (4), Hollandi (1) og Rúmeníu (1). Tíðni mislinga var langhæst meðal ungbarna 12 mánaða og yngri (124 tilfelli á milljón einstaklinga) og 1–4 ára barna (65.3 tilfelli á milljón einstaklinga). Á 2 fyrstu mánuðum þessa árs, janúar og febrúar 2026, greindust 350 einstaklingar með mislinga í Evrópu og mislingasmit aukast venjulega á vorin, einkum meðal þeirra sem ekki hafa fengið 2 bólusetningar. Evrópska smitsjúkdómastofnunin, European Centre for Disease Prevention and Control (EDCD), telur að til þess að koma í veg fyrir að mislingar breiðst út í Evrópu þurfi að ná og viðhalda hárri þekjun bólusetninga gegn mislingum og að yfir 95% einstaklinga fá tvo skammta af mislingabóluefni. Lykilatriði sé að bæði fyrri og seinni skammtur sé gefinn börnum á réttu tíma samkvæmt ráðleggingum sóttvarnaryfirvalda. Á Íslandi er ráðlögð bólusetning gegn mislingum með tveimur skömmtum af MMR bóluefninu, sem ver gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum, og veitir örugga vörn. MMR bólusetning gefin við 18 mánaða aldur og endurtekin við 12 ára aldur. Á Íslandi gengu skæðir mislingafaraldrar áður en bólusetningar hófust. Talið er að í faraldrinum árið 1846 hafi 926 dáið úr mislingum, 58 í Austfjarðafaraldrinum 1869-70, og 952 í faraldri árið 1882. Fyrsta bóluefnið gegn mislingum kom fram árið 1966 og á Íslandi hófust mislingabólusetningar barna árið 1976 og síðasti stóri mislingafaraldurinn var árið 1977. Mislingar greindust ekki hérlendis frá árinu 1996 fyrr en 2014 (1 einstaklingur), 2016 (1), 2017 (3) og 2021 (2). Í hópsýkingu árið 2019 greindust 6 einstaklingar og mátti rekja öll smitin til sama einstaklings. Flestir sem hafa greinst með mislinga hér á landi frá því bólusetningar urðu almennar smituðust erlendis. Sóttvarnalæknar fyrr og nú hafa ítrekað bent á að mislingar geta borist hingað til lands en talið ólíklegt að þeir nái mikilli útbreiðslu, ef nær öll íslensk börn verða áfram bólusett eins og ráðlagt er. Árið 2022 fengu aðeins 80% barna seinni skammt af mislingabóluefni, en með mikilli fræðslu og góðri heilbrigðisþjónstu hefur gríðarlegur árangur náðst. Árið 2023 fengu 89% barna seinni skamm af mislingabóluefni og 98% árið 2024 (mynd 2). Mynd 2. Hlutfall (%) þeirra sem fengu seinni skammt af mislingabóluefni á Íslandi 2022-2024. Í Evrópulöndum innan Evrópusambandinsins og evrópska efnahagssvæðisins hefur meðvitund um mikilvægi þess að bólusetja börn gegn mislingum aukist verulega að undanförnu. Árið 2024 voru á bilinu 62% til 99% sem fengu annan skammt mislingabóluefnis, að meðaltali 88%, sem er langt undir 95% markmiði EDCD. Hæst tveggja skammta bólusetningatíðnin 99% var í Ungverjalandi og Ísland var í öðru sæti með 98%, betri árangur en á hinum Norðurlöndunum, þar sem tíðnin var undir 95% markmiði EDCD, eða 93% Danmörku, 92% í Finnlandi, 94% í Noregi og 92% í Svíþjóð. Mynd 3. Hlutfall (%) þeirra sem fengu seinni skammt af mislingabóluefni í Evrópu (EU/EEA) árið 2024. Í dag, 29. apríl, er dagur ónæmisfræðinnar, en eitt mikilvægasta framlag fræðigreinarinnar er aukinn skilningur á ónæmisvörum og þróun bóluefna sem vernda börn og fullorðna gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Þessi vika (World Immunization Week 2026) er tileinkuð bólusetningum um allan heim. Við getum verið stollt af þeim árangri sem hefur náðst í bólusetningum á Íslandi almennt og bólusetningum gegn mislingum sérstaklega, þökk sé starfsfólki embættis sóttvarnarlæknis, ungbarnaverndar og heilugæslunnar og ekki síst þeim foreldrum sem láta bólusetja börnin sín gegn mislingum og öðrum alvarlegum smitsjúkdómum. Það er réttur allra barna. Heimildir: Ársskýrsla sóttvarna 2021, https://www.ecdc.europa.eu, https://www.gavi.org/our-work/vaccine-portfolio/measles-measles-rubella Höfundur er prófessor emeríta í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands og verkefnisstjóri smit- og bólgusjúkdóma hjá Íslenskri erfðagreiningu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bólusetningar Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar