Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 21:18 Stjörnukonur halda sæti sínu í Olís-deildinni. VÍSIR/VILHELM Stjörnukonur lentu sjö mörkum undir gegn Gróttu í oddaleik um sæti í Olís-deildinni í handbolta á næstu leiktíð en fögnuðu sigri og verða því áfram í deild þeirra bestu.
Stjarnan endaði í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar í vor og varð því að fara í umspil við lið úr Grill 66-deildinni. Því lauk ekki fyrr en í oddaleik gegn Gróttu í kvöld, í Garðabænum, þar sem Stjarnan vann að lokum 25-23. Grótta hafði komist í 2-1 í einvíginu og fékk því tvo leiki til að tryggja sér sigur en tapaði þeim báðum. Í kvöld byrjuðu Seltirningar mun betur og komust til að mynda í 14-7 og svo 17-10 í upphafi seinni hálfleiks. Stjarnan skoraði þá fjögur mörk í röð á skömmum tíma og kom sér strax aftur inn í leikinn, og náði svo að jafna 18-18 þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Stjarnan var svo sterkari á lokakaflanum og uppskar sigurinn sem tryggir liðinu áframhaldandi veru í efstu deild. Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir var öflug í marki Stjörnunnar og skráð með 17 varin skot á vef HB Statz. Inga María Roysdóttir var svo markahæst með sex mörk og Natasja Hammer skoraði fimm. Hjá Gróttu var Katrín S Scheving Thorsteinsson markahæst með sjö mörk og Ída Margrét Stefánsdóttir skoraði fimm.
Olís-deild kvenna Stjarnan Grótta Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Ísland - Króatía | Króatar þurfa kraftaverk Fótbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Tatabánya | Stórt Evrópuverkefni á Hlíðarenda Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Sjá meira