Liðsfélagi Stefáns og Alfons kveikjan að risastóru dómsmáli Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. apríl 2026 15:00 Stefán Ingi og hinn umræddi Dean James í baráttunni um boltann í leik við Twente. Wart Brinkerhof/Marcel ter Bals/DeFodi Images/DeFodi via Getty I NAC Breda hefur farið fram á að úrslit 6-0 taps liðsins gegn Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni verði dæmd ógild því síðarnefnda liðið spilaði ólöglegum leikmanni. Ef NAC vinnur málið í dómssal gæti þurft að ógilda úrslit 133 annarra leikja í deildinni.
Stefán Ingi Sigurðarson skoraði eitt mark og Alfons Sampsted var í leikmannahópi Go Ahead Eagles í 6-0 stórsigrinum í síðasta mánuði en vandamálið er að í vinstri bakverði var Dean James, mögulega án atvinnuleyfis. NAC hefur farið fram á að úrslit leiksins verði gerði ógild og leikurinn endurtekinn. Það kæmi sér vel fyrir NAC því liðið situr í næstneðsta sæti, sex stigum frá öruggu sæti. Málið er frekar flókið því James er fæddur í Hollandi en NAC vill meina, vegna þess að James kaus að spila fyrir landslið Indónesíu í fyrra, að þá sé hann samkvæmt reglum deildarinnar erlendur leikmaður en ekki lengur Hollendingur. „Þetta snýst ekki um tilfinningar. Þetta er einföld. Ólöglegum leikmanni var teflt fram,“ segir lögfræðingur NAC við hollenska miðilinn NOS sem fjallar um „Paspoorgate“ skandalinn. Dean James gæti verið fordæmi fyrir aðra leikmenn í öðrum félögum. ANP via Getty Images NOS hefur fundið dæmi um ellefu aðra leikmenn í tíu öðrum félögum sem myndu falla undir skilgreiningu NAC á ólöglegum leikmanni. Það er að segja, leikmenn sem eru fæddir í Hollandi og spila í Hollandi sem Hollendingar en leika fyrir önnur landslið. Ef NAC vinnur málið í dómssal myndi það mögulega hafa í för með sér að önnur félög myndu kæra niðurstöður og 133 leikir yrðu endurteknir. KNVB houdt rekening met paspoortchaos 🛂Marianne van Leeuwen: "Dan zou het kunnen beteken dat de competitie niet uitgespeeld kan worden"🔗 https://t.co/hvCbS2OQpT pic.twitter.com/akxhLm1k7Y— ESPN NL (@ESPNnl) April 28, 2026 Hollenska knattspyrnusambandið KNVB ákvað að fallast ekki á kröfur NAC um að úrslitin yrðu ógild en málið fór fyrir dómstól í Utrecht og niðurstaða verður gerð ljós næsta mánudag. Ef NAC vinnur málið í dómssal óttast varaforseti knattspyrnusambandsins að deildarkeppni þessa tímabilsins geti ekki klárast, eins og kemur fram í viðtalinu að ofan.
Hollenski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Brynjar Ingi sigldi öruggu sæti í höfn Rodri ekki meira með KA í ár Sædís skoraði og ótrúleg ferna liðsfélaga Hildar Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund Allegri líklegastur til að taka við af Conte Sjá meira