Formúla 1

Heims­meistarinn fremstur í sprettinum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Lando Norris gat fagnað heimsmeistaratitli í fyrra en McLaren átti í vandræðum í upphafi tímabils. Hann gat aftur fagnað því að vera fremstur í dag. En þó er heil sprettkeppni eftir, auk annarrar tímatöku og kappakstursins sjálfs.
Lando Norris gat fagnað heimsmeistaratitli í fyrra en McLaren átti í vandræðum í upphafi tímabils. Hann gat aftur fagnað því að vera fremstur í dag. En þó er heil sprettkeppni eftir, auk annarrar tímatöku og kappakstursins sjálfs. Clive Mason/Getty Images

Lando Norris ræsir sprettkeppni morgundagsins í Formúlu 1 í Miami í Flórída. Heimsmeistarinn átti draumahring.

Norris var langsneggstur allra í Miami þennan föstudaginn og náði glimrandi hring í þriðju umferð tímatökunnar. Hann fór hringinn á einni mínútu og 27,869 sekúndum.

Ferrari-menn höfðu heillað á æfingum og Charles Leclerc sneggstur þar en þeim tókst ekki að leika það eftir í dag. Þá tókst ekki heldur nægilega vel til hjá George Russell sem hafði verið öflugur í fyrstu þremur keppnir tímabilsins fyrir mánaðarlöngu pásuna sem tók við vegna stríðsbrölts í Miðausturlöndum.

Kimi Antonelli, liðsfélagi Russells, hjá Mercedes tókst á síðasta hring dagsins að troða sér milli liðsfélagana hjá McLaren en Oscar Piastri mun ræsa þriðji.

Charles Leclerc á Ferrari var fjórði sneggstur, Max Verstappen á Red Bull fimmti, George Russell á Mercedes sjötti og Lewis Hamilton á Ferrari sjöundi.

Sprettkeppnin verður í beinni á Sýn Sport Viaplay klukkan 15:55 á morgun. Tímataka fyrir kappakstur sunnudagsins er einnig á morgun, einnig á Sýn Sport Viaplay klukkan 19:55.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×