„Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. maí 2026 12:36 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland eru formenn ríkisstjórnarflokkanna en meirihluti þeirra á Alþingi er fallinn samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Vísir/Vilhelm Prófessor í stjórnmálafræði segir eftirtektarvert að Flokkur fólksins virðist taka út óánægju með ríkisstjórnarflokkana á meðan flokkur forsætisráðherra haldi velli. Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup er meirihluti ríkisstjórnarinnar á þingi fallinn.
Samkvæmt niðurstöðum nýs þjóðarpúls Gallups sem birtist í gær mælist stuðningur við ríkisstjórnina í fyrsta sinn undir fimmtíu prósentum síðan núverandi stjórn tók við fyrir rúmu ári síðan. Samfylkingin mælist enn með mest fylgi eða tæplega tuttugu og níu prósent og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig og mælist með tuttugu og eitt prósent. Ríkisstjórnin nýtur stuðnings tæplega helmings landsmanna og fengi stjórnarmeirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins samtals þrjátíu þingmenn og væri ríkisstjórnarmeirihlutinn því fallinn. „Í bullandi fallbaráttu og búinn að vera lengi“ Eiríkur Bergmann Prófessor í stjórnmálafræði segir í raun eftirtektarvert hversu lengi hveitibrauðsdagar stjórnarinnar hafi varað og það sé nánast lögmál að stjórnarflokkar tapi fylgi. Hann segir stöðu stjórnarandstöðuflokkanna misjafna. „Það er vitaskulda þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í alveg feikilegri lægð og er kannski aðeins að byrja að rétta úr kútnum núna. Á sama tíma er Framsóknarflokkurinn bara í bullandi fallbaráttu og búinn að vera það lengi,“ sagði Eiríkur í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Á meðan hafi Miðflokkurinn tekið stöðu Framsóknarflokksins. „En síðan er kannski tvennt sem er eftirtektarverðast og það er að Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina á meðan að flokkur forsætisráðherrans heldur miklu betur sinni stöðu og er náttúrulega með ævintýralega mikið fylgi sögulega séð fyrir Samfylkinguna,“ segir Eiríkur og bætir við að þetta skýrist að einhverju leyti að því að Flokkur Fólksins sé áskorendaflokkur í stjórnmálafræðilegum skilningi. „Gerbreytir allri stöðu íslenskra stjórnmála“ Þá mælast Vinstri grænir á þingi í fyrsta sinn í langan tíma en flokkurinn er ásamt Flokki fólksins og Framsókn rétt yfir fimm prósenta þröskuldnum. „Það eru þrír flokkar sem eru algjörlega við þröskuld og hvort þeir haldist fyrir ofan hann eða undir gerbreytir allri stöðu íslenskra stjórnmála. Það er kannski mesta spennan þar.“ Sveitastjórnarkosningar fara fram eftir tvær vikur og segir Eiríkur þær að einhverju leyti mælistiku fyrir ríkisstjórnina. „Kosningar til Alþingis og sveitastjórna eru auðvitað alls ekki sami hluturinn og það eru ólík málefni sem ráða. En auðvitað kallast fylgi flokkanna á á milli sveitastjórnarstigsins og Alþingis þannig að þetta er ekki úr tengslum hvort við annað þó svo að margir aðrir þættir skipti máli um stöðu flokks í hverju sveitarfélagi fyrir sig,“ sagði Eiríkur Bergmann að lokum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Flokkur fólksins Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Vinstri græn Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira