Formúla 1

Antonelli fékk færri til­raunir en tók ráspólinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ítalinn ungi verður fyrstur af stað en Verstappen og Leclerc koma í kjölsoginu.
Ítalinn ungi verður fyrstur af stað en Verstappen og Leclerc koma í kjölsoginu.

Kimi Antonelli ökuþór Mercedes verður fyrstur af stað þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Miami fer af stað annað kvöld. Max Verstappen fylgir honum fast eftir á Red Bull bílnum og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Formúla 1 er að hefjast aftur eftir fimm vikna frí og hingað til um helgina höfðu fyrirsagnirnar snúist um McLaren ökuþórana en efsti maður heimslistans minnti vel á sig í tímatökunni.

Antonelli átti frábæran fyrsta hring í þriðju tímatökunni og það kom ekki að sök þó seinni hringurinn hefði farið úrskeiðis hjá Mercedes liðinu. Tíminn var nógu góður til að tryggja Antonelli fyrsta sætið.

Antonelli var tveimur sekúndubrotum sneggri en Verstappen og þremur sekúndubrotum sneggri en Charles Leclerc hjá Ferrari.

Liðsfélagi Antonelli hjá Mercedes, George Russell, verður fimmti af stað á eftir Lando Norris hjá McLaren. Lewis Hamilton verður svo sjötti af stað en Oscar Piastri hjá McLaren, sigurvegari sprettkeppninnar, lenti í bilun á rafgeymi og verður sjöundi af stað.

Formúlu 1 kappaksturinn í Miami hefst klukkan 19:30 annað kvöld og verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×