Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson og Ágústa Árnadóttir skrifa 4. maí 2026 10:47 Markmið Regnbogavottunar Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi borgarinnar hinseginvænni og geta öll borgarfyrirtæki öðlast vottunina svo framarlega sem þau fara að fyrirmælum vottunaraðilans sem er Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar. Regnbogavottun var kynnt sem mannréttindaverkefni en í framkvæmd hefur hún þróast í ferli sem vekur sífellt áleitnari spurningar um vald, kúgun, persónufrelsi, frjálsa hugsun og forgangsröðun í starfsháttum borgarinnar. Á pappír er markmiðið að tryggja virðingu, jafnræði og hinseginvæna vinnustaði. Starfsfólki borgarinnar er gert að undirgangast skyldubundna fræðslu, taka þátt í skilgreindri hugmyndavinnu og starfa samkvæmt aðgerðaráætlunum sem eru endurskoðaðar árlega, án þess að fyrir liggi vandamál sem réttlæta slíka íhlutun. Kjarni málsins er að Reykjavíkurborg er komin út fyrir sitt verksvið og virðir ekki frelsi starfsfólks til að vera ósammála og knýr á um að það sé hugmyndafræðilega undirgefið og meðtaki „fræðslu“ þrátt fyrir að sama starfsfólk sinni sínu starfi af einlægni og alúð. Skylda í skjóli mannréttinda Það er grundvallarmunur á því að krefjast fagmennsku og virðingar og því að krefjast þátttöku í innrætingu þar sem allir eiga að samræmast í því að vera sammála. Regnbogavottunin knýr á um hið síðara. Þegar öllum starfsmönnum er gert að sitja námskeið um hinseginleikann, óháð persónulegri sannfæringu, trú eða áhuga, er farið yfir mörk heilbrigðrar stjórnsýslu. Þeir sem efast, spyrja spurninga eða hafna þátttöku eiga á hættu að vera litnir hornauga, taldir ósamvinnuþýðir eða „vandamál“ sem þarf að „bregðast við“. Reykjavíkurborg hefur ekki svarað því skýrt hvort slíkt hafi leitt til uppsagna eða áminninga. Sú þögn ætti að kveikja viðvörunarljós. Mannréttindi eiga að verja einstaklinga gegn valdi hins opinbera en ekki öfugt, þ.e. að vera notuð sem stjórntæki af hinu opinbera gegn einstaklingum. Tapaðar vinnustundir – óljós árangur – óuppgefinn kostnaður Kostnaður Regnbogavottunar Reykjavíkurborgar fæst ekki uppgefinn en hann felst ekki aðeins í launakostnaði eða skrifstofuhaldi heldur í töpuðum vinnustundum þúsunda starfsmanna. Margar klukkustundir fara í fræðslu, fundi, skjalagerð, árlegar uppfærslur og eftirlit, oftast á vinnustöðum þar sem engar kvartanir hafa borist né vandamál og mismunun hefur átt sér stað. Það er undarleg stjórnsýsla sem kveður á um að allir þurfi að „fræðast“ og breyta sér, óháð því hvort að þörfin sé brýn. Þetta eru ekki mannréttindi, þetta er kerfisvædd tortryggni. Verkefni án enda – heilaþvottur Regnbogavottun er skilgreind sem „lifandi ferli“ með endurmenntun og endurmati á þriggja ára fresti. Þegar Regnbogavottunin er einu sinni komin af stað þá tekur hún engan endi. Í reynd er verið að búa til varanlegt eftirlits- og heilaþvottakerfi sem bindur tíma, fjármagn og mannauð borgarfyrirtækja um ókomna framtíð. Þegar slíkt ferli verður normið getur skapast hættuleg venja sem er sú að borgin telji sig hafa rétt til að móta hugsanir starfsfólks, svo lengi sem hún gerir það í skjóli „mannréttinda“. Góð áform réttlæta ekki slæm vinnubrögð Það þarf ekki vottun til að banna mismunun. Það þarf hvorki hugmyndafræðilega fræðslu né innrætingu til að sýna fólki virðingu. Það sem Reykjavíkurborg ber að gera er að krefjast fagmennsku, framfylgja lögum og bregðast við raunverulegum brotum þegar þau koma upp. Í stað þess hefur borgin valið að fara leið þvingaðrar fræðslu. Þessi svokallaða „fræðsla“ er á einn veg og tekur ekki tillit til þess að fólk með mismunandi skoðanir, trú og lífsgildi vinnur hjá Reykjavíkurborg. Það er löngu tímabært að staldra við og skoða hvert þessi leið liggur. Stefna Okkar Borgar er skýr! Regnbogavottun Reykjavíkurborgar verður hætt og Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar tekin til gagngerðar endurskoðunar. Virðum rétt til frjálsrar hugsunar. Veljum gleði og von – veljum Okkar Borg – veljum X – R Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X – R. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar