Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Aron Guðmundsson skrifar 4. maí 2026 17:39 Kimi Antonelli hefur farið frábærlega af stað á keppnistímabili Formúlu 1. Vísir/Getty Það er óhætt að segja að Ítalinn ungi, Kimi Antonelli ökuþór Mercedes, sé að slá í gegn í Formúlu 1 um þessar mundir. Antonelli vann sinn þriðja kappakstur á ferlinum í mótaröðinni í gær. Þann þriðja í röð og stillir sér upp við hlið goðsagna á borð við Michael Schumacher og Ayrton Senna.
Antonelli kom sá og sigraði í Miami kappakstrinum í gær eftir rúmlega mánaðarhlé í Formúlu 1. Nítján ára gamla ungstirnið var á ráspól í keppni gærdagsins og mátti hafa sig allan við að sigla heim sigrinum í umræddum kappakstri. Ítalinn missti fyrsta sætið frá sér í ræsingunni en gerði vel í að vinna sig aftur upp í baráttuna um sigurinn í keppninni og eftir baráttu við ríkjandi heimsmeistarann Lando Norris hjá McLaren stóð Antonelli uppi sem sigurvegari. Antonelli hefur verið góður í því að slá alls konar met í upphafi tímabils. Hann vermir nú efsta sæti stigakeppni ökuþóra nokkuð óvænt og afrek hans um nýliðna helgi eru ekki til þess að draga úr stemningunni sem ríkir gagnvart þessum öfluga ökuþór. Ráspóll Antonelli í Miami var hans þriðji á Formúlu 1 ferlinum og jafnframt sá þriðji í röð. Aðeins tveir ökuþórar í sögu Formúlu 1 hafa afreka að ná sínum fyrstu þremur ráspólum í mótaröðinni öllum í röð og það eru engin smá nöfn. Drivers to take their first 3 poles consecutively - Senna, Schumacher, AntonelliDrivers to take their first 3 wins consecutively - Damon Hill, Hakkinen, AntonelliDrivers to consecutively win their first 3 F1 races from their first 3 poles - AntonelliQuite the stat— Will Buxton (@wbuxtonofficial) May 3, 2026 Fyrir ráspól Antonelli um helgina höfðu fyrrverandi heimsmeistararnir og goðsagnirnar í sögu Formúlu 1, Ayrton Senna og Michael Schumacher, afrekað það að sækja sínu fyrstu þrjá ráspóla í Formúlu 1 alla í röð. Og eins og það hafi ekki verið nóg þá kom Antonelli sér líka í afar fámennan en góðan hóp með því að ná að vinna sína fyrstu þrjá kappakastra alla í röð í Formúlu 1. Fyrir sigur Antonelli í gær höfðu aðeins fyrrverandi heimsmeistararnir og goðsagnirnar Damon Hill og Mika Hakkinen aðeins afrekað það. Aðeins einum ökuþór hefur hins vegar tekist að vinna fyrstu þrjá kappakstra sína í röð í Formúlu 1 eftir sína fyrstu þrjá ráspóla í röð. Það er Kimi Antonelli. Antonelli leiðir nú stigakeppni ökuþóra eftir fyrstu fjórar umferðir tímabilsins. Hann er með tuttugu stiga forskot á liðsfélaga sinn hjá Mercedes, George Russell.
Akstursíþróttir Mest lesið Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Valur - Grindavík | Halda Valsmenn sér á lífi? Körfubolti Forest skellti Chelsea Enski boltinn FH - Valur | Bikarinn á loft í Krikanum? Handbolti Everton - Man. City | Allt undir hjá City-mönnum Enski boltinn Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Enski boltinn Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Enski boltinn Segir að leikaraskapur Embiids sé að eyðileggja körfuboltann Körfubolti „Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ Körfubolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira