Segist hafa skipt um hótel til að spara Sindri Sverrisson skrifar 5. maí 2026 07:31 Diego Simeone brosti út í salinn á blaðamannafundi í London í gærkvöld. Getty/Harry Murphy Diego Simeone, stjóri Atlético Madrid, vildi ekki meina að það væri vegna hjátrúar sem að liðið hefði skipt um hótel í London fyrir seinni leikinn við Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.
Simeone og leikmenn Atlético dvöldu á fjögurra stjörnu Marriott-hótelinu í Regents Park áður en þeir steinlágu, 4-0, gegn Arsenal í London þegar liðin mættust í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í október. Núna dvelja Atlético-menn hins vegar á fimm stjörnu hóteli, Courthouse Hotel í Shoreditch í austurhluta Lundúna. Fregnir bárust af því að Simeone hefði fyrirskipað þessa breytingu því hann óttaðist að því fylgdi ógæfa að dvelja aftur á sama hóteli og í tapinu í október. Hann var spurður út í þetta á blaðamannafundi í gærkvöld: „Þetta hótel var ódýrara. Þess vegna breyttum við,“ svaraði Simeone hálfhlæjandi og uppskar hlátur blaðamanna. 🎙️ Diego Simeone was asked if they changed the hotel the team are staying in, in London, as a superstition because Atlético Madrid lost 4-0 to Arsenal earlier in the season:🗣️ He replied: "We changed hotels because this one was cheaper."pic.twitter.com/dyWKdJXqRA— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) May 4, 2026 Liðin gerðu 1-1 jafntefli í Madrid fyrir viku í fyrri undanúrslitaleik sínum og því er allt opið fyrir seinni leikinn í kvöld. Óvissa hefur verið um stöðuna á Julian Alvarez, sem skoraði úr víti gegn Arsenal en varð að fara af velli á 77. mínútu og var ekki með í deildarleik um helgina, vegna meiðsla. Þessi fyrrverandi leikmaður Manchester City, sem skorað hefur 20 mörk í vetur, ferðaðist þó með Atlético til London og verður í hópnum í kvöld. „Julian Alvarez er mikilvægur í þessum leik því hann þekkir ensku deildina mjög vel. Hann lék mjög vel í síðustu viku og ég vona að hann geti gert það sem hann þarf að gera í leiknum,“ sagði Simeone. Leikur Arsenal og Atlético verður í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay klukkan 19 í kvöld. Upphitun hefst hálftíma fyrr.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Hagræddi sannleikanum um heilsu Mortensen fyrir leik“ Sport Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira