Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar 5. maí 2026 11:01 „Hvað ætlar þú að kjósa eftir reynslu kjörtímabilsins?“, spurði einn félaganna í Vinum Kópavogs mig um helgina. Ég hef áður fengið símtöl frá félögum úr þeim hópi sem velta því fyrir sér hvern þeir eigi að kjósa. Mitt svar hefur verið að nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram. Ég hvet fólk til að kanna hvaða framboði sé best treystandi til að fylgja eftir áherslum Vina Kópavogs, grasrótarsamtaka sem spruttu upp til að gæta hagsmuna bæjarbúa gagnvart bæjaryfirvöldum. Ofurþétting byggðar, t.d. í miðbænum og á þéttingarreitum á Kársnesi, samfara yfirgangi við íbúa sem voru fyrir, var hvatinn að framboðinu. Mörgum okkar fannst erfitt að horfa upp á þann skort á fagmennsku og virðingu fyrir því að ákvarðanir snúist um hagsmuni heildarinnar en ekki einstakra fjárfesta, sem einkenndi skipulagsmál í Kópavogi. Áform bæjaryfirvalda um að gefa einkaaðilum frelsi til niðurrifs, sprenginga og áralangra framkvæmda undir húsveggjum íbúa í miðbænum og víðar skelfdu. Helsta leiðarljós framboðs Vina Kópavogs var virðing fyrir fólki og viðfangsefnum. Kópavogsbær skyldi sjálfur annast deiliskipulag og taka það verkefni úr höndum fjárfesta. Áhersla yrði á hófsemi í þéttingu byggðar, gæði bygginga, grænar lóðir, svæði til útivistar og mannlífs, virðingu fyrir náttúru, sjálfbærni og aðgangi almennings að grænum og bláum svæðum. Augljóslega var íbúalýðræði ofarlega á dagskrá okkar. Þrátt fyrir skamman undirbúningstíma og naum fjárráð var meðbyrinn mikill. Vinir Kópavogs fengu tvo bæjarfulltrúa og næstmest fylgi allra framboða. Þetta var grasrót eins og hún gerist best. Ég var full tilhlökkunar að leggja mitt af mörkum til bæjarins sem fóstraði mig frá frumbernsku, ekki síst til að stuðla að aukinni fagmennsku og gæta þess að farið væri að lögum og leikreglum við undirbúning og töku ákvarðana. Ég hef reynslu af stjórnun, stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum, m.a. sem borgarritari í Reykjavík, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, ráðuneytisstjóri og í stjórn Alþjóðabankans og eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. Ég á erfitt með að lýsa vonbrigðum síðustu fjögurra ára. Alvarlegt er að hafa sannreynt virðingarleysi bæjarstjóra fyrir hlutverki sínu og þeim trúnaði og skyldum sem starfinu fylgja. Bæjarstjóri á ekki að gæta þröngra flokks- eða sérhagsmuna heldur gegna hlutverki sínu í þágu allra bæjarbúa og allra bæjarfulltrúa, sem ráða bæjarstjórann. Bæjarstjóri á að vinna með bæjarráði að framkvæmdastjórn og fjármálastjórn bæjarins og sæta eftirliti þess. Bæjarstjóri á að tryggja að kjörnir bæjarfulltrúar fái gögn og greiningar til að taka rökstuddar ákvarðanir með góðri samvisku. Því miður heyrir til undantekninga að mál séu þannig undirbúin. Bæjarstjórinn forðast að upplýsa bæjarráð um mál í undirbúningi og leggur þau að jafnaði ekki fram fyrr en komið er að formlegri afgreiðslu. Bæjarráð ber lagalega ábyrgð á undirbúningi fjárhagsáætlunar. Árin mín í bæjarstjórn hef ég aldrei fengið tækifæri til að standa undir því hlutverki. Bæjarstjóri hefur tekið allar ákvarðanir með fulltingi stjórnsýslunnar og meirihlutans þegar mál kemur loks til kasta bæjarráðs. Tillögur minnihlutans fá engan hljómgrunn. Sama gildir um mál sem fela í sér nýbreytni og stefnubreytingu í samskiptum við einkaaðila. Bæjarstjóri hefur gengið frá ýmsum viljayfirlýsingum, samningum og samkomulagi án umboðs frá bæjarráði. Engin umræða, engin skoðanskipti, engin pólitík, bara yfirgangur. Dæmin um að fulltrúalýðræðið sé ekki virt í Kópavogi eru mýmörg. Kerfum hefur verið kippt úr sambandi, ekkert verklag er til að sinna eftirliti með stjórnsýslunni og gæðastjórinn var látinn víkja. Fjárfestingaráætlanir eru ekki gerðar og ekki eru lagðir fram viðaukar þegar fjárfestingar fara fram úr heimildum, svo sem skylt er að lögum. Viðbótarútgjöld eru fjármögnuð með tekjum af sölu byggingarréttar sem ekki eru teknar með í í fjárhagsáætlun. Það skrítnasta er að bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins og aðrir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins en bæjarstjórinn láti þetta yfir sig ganga. Með þeirra atkvæðum og á þeirra ábyrgð kemst bæjarstjórinn upp með að virða hlutverk bæjarráðs að vettugi. Henni er tamara að segja „ég“ en „við“ þegar hún hreykir sér af framfaraskrefum. Hún græjar þetta bara allt. Þá ætti hún raunar líka að segja: „ég tók við færri flóttamönnum frá Úkraínu en aðrir“ „ég læt foreldra án baklands borga hærri leikskólagjöld en annars staðar“ „ég tek ekki þátt í uppbyggingu almenna íbúðakerfisins eins og önnur sveitarfélög“ og “ég læt biðlista byggjast upp í velferðarkerfinu”. Kópavogur virðist skorast undan því að bera samfélagsbyrðar á við önnur stór sveitarfélög. Það er ekki sá Kópavogur sem ég er alin upp í og ekki sá Kópavogur sem ég vil búa í. Vinir Kópavogs bjóða ekki fram að þessu sinni. Grunngildin lifa þó áfram; virðing fyrir fólki og að bænum verði stjórnað af fagmennsku og í samræmi við reglur. Til að varðstaða verði um grunngildi Vina Kópavogs þarf að koma núverandi meirihluta og bæjarstjóra frá völdum. Sjálf les ég þannig í spilin að framboð Samfylkingarinnar sé best til þess fallið að standa undir samfélagslegri ábyrgð og virða bæði fólk og viðfangsefni. Mitt atkvæði mun því fara til hennar. Höfundur er oddviti Vina Kópavogs í bæjarstjórn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar