„Agaleysið er algjört“ Stefán Árni Pálsson skrifar 5. maí 2026 13:02 Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir og Sigurjóna Björgvinsdóttir fara yfir menntamálin hér á landi. Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir er 24 ára, menntuð í menntavísindum og heilsueflingu en flosnaði upp úr íslensku skólakerfi og fór til Bandaríkjanna og stofnaði menntatæknifyrirtækið Hearts. Sigurjóna Björgvinsdóttir er 75 ára grunnskólakennari á eftirlaunum. Það er því rétt rúmlega hálf öld sem aðskilur viðmælendur okkar. Við ákváðum að leiða þessar tvær saman til að velta vöngum hvað mætti betur fara í íslensku skólakerfi og hvar við fórum út af sporinu. „
Það er í rauninni að einhverju leyti svolítið gamaldags,“ segir Jóhanna um skólakerfið í dag og vísar ekki bara í tæki tól heldur einnig viðhorf innan skólakerfisins. Sigurjóna segir skólakerfið mögulega vera gamaldags en að börnin séu alltaf svipuð. „Grunngildi hjá börnum eru alltaf þau sömu. Þau þurfa ákveðna festu. Þau þurfa hluti sem þau ráða við en það þurfa líka að vera áskoranir. Og þau þurfa að sjá árangur.“ Sigurjóna telur það hafa verið mistök að fara úr bekkjum sem var skipt eftir getu yfir í blandaða bekki. „Mér fannst alltaf duglegustu krakkarnir bera minnst úr býtum í blandaða kerfinu. Miðjan fékk allt. Efstu og neðstu fengu afskaplega lítið,“ segir Sigurjóna. Hún er fylgjandi því að skipta börnum eftir getu. Jóhanna vill sveigjanlegra námsefni. Þær eru báðar sammála um að skóli án aðgreiningar séu bara orð á blaði því ekkert hafi verið gert til að byggja undir þá hugmyndafræði. „Þetta er ekki skóli án aðgreiningar þó þið kallið þetta það,“ segir Jóhanna. En ættu skólar að geta umbunað góðum kennurum? „Já,“ segir Jóhanna hiklaust. „Mér finnst það, en það er svo erfitt að umbuna góðum kennurum því góður kennari getur líka verið sá sem er að sleikja upp skólastjórann. Það eru margir mjög góðir kennarar, alveg frábærir en því miður hefur það alls ekki minnkað í þessari stétt að þetta er þægileg innivinna hjá sumum,“ segir Sigurjóna. Sigurjóna útskrifaðist úr kennaranáminu árið 1971. Hún telur að kennaranámið í dag þurfi að bæta - alltof mikið af hópverkefnum og fjarnámi. Jóhanna tekur í sama streng. „Það er svo auðvelt að fljóta með,“ segir Jóhanna með vísan í hópverkefnin. Blöskraði talsmáti barnanna Mikið hefur verið talað um að agaleysi einkenni íslenska skólakerfið. Hvað segja viðmælendur okkar um það? „Agaleysið er algert og svona skipulagsleysi,“ segir Sigurjóna og rifjar upp skólasetningu sem hún sótti hjá skóla á höfuðborgarsvæðinu sem var henni ekki að skapi. „Ég tel það vera mikið uppeldisatriði að börn læri að hlýða.“ Jóhanna segir skorta virðingu í garð kennara og nemenda og að það sé eitthvað sem ætti að leggja upp úr. „Ég er búin að vera að tala í grunnskólum og búin að tala við þrjátíu bekki og mér blöskraði alveg hvernig börnin töluðu við mig og við kennarana. Þetta var ekki svona þegar ég var í grunnskóla,“ segir Jóhanna. En eru kennarar alltof viðkvæmir? „Sumir eru það,“ segir Sigurjóna. „Það er margt mjög vel gert í mörgum grunnskólum en ég held að það þurfi að taka verulega til í skipulags- og agamálum og engan losarabrag,“ bætir hún við. „Ég vil gjarnan að menntakerfið þróist í mannvæna átt og að kennaramenntunin verði sett á oddinn fyrir börnin,“ segir Sigurjóna enn fremur. „Það væri mjög gaman að sjá fjölbreyttara menntakerfi sem myndi ekki bara umbera fjölbreytileikann heldur fagna honum,“ segir Jóhanna. Innslagið má sjá hér fyrir neðan.
Ísland í dag Skóla- og menntamál Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira