Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar 5. maí 2026 11:45 Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga leggja flokkarnir áherslur á ýmis málefni eins og velferð barna, menntakerfið, atvinnumál og hér á Akranesi, ónýtar götur. Allt eru þetta mjög mikilvæg málefni. En að mínu mati mætti tala meira um eldra fólkið okkar. Svo miklu meira! Þetta er fólkið sem byggði upp okkar fallega bæ, sinntu vinnu fyrir samfélagið, eignuðust börn sem mörg hver eru búsett hér og hafa borgað sína skatta. Með öðrum orðum, þau byggðu upp samfélagið á Akranesi. Samt sem áður hefur skapast neyðarástand fyrir eldra fólk á Akranesi. Af hverju? Jú hjúkrunarheimilið Höfði annar ekki eftirspurn og heimahjúkrun er löngu sprungin. Hvenær á að stækka? Af hverju fer minn aðstandandi ekki ofar á lista? Svarið er einfalt. En samt ekki. Það eru allir á biðlistanum í nákvæmlega sömu stöðu og neyðin er gríðarleg. Fólk kvíður því að vera eitt heima hjá sér því það gæti jú alltaf eitthvað komið fyrir og þá sérstaklega á efri árum. Fólk finnur fyrir einkennum þunglyndis einfaldlega vegna skorts á félagslífi og samskiptum við annað fólk. Þetta er síðan fyrir utan allt álagið sem skapast á aðstandendur. Það eru ekki allir sem eru það hressir að þeir geta skráð sig í „sprækir Skagamenn” og vandinn leystur. Það tiltekna verkefni er vissulega frábært fyrir þá sem hafa möguleikann á að geta nýtt sér það. En hvað með öll hin? Þau sem komast ekki fram úr rúminu án aðstoðar heimahjúkrunar eða aðstandenda, þau sem geta ekki háttað sig á kvöldin án aðstoðar, þau sem eru komin með elliglöp og eru ekki lengur fær um að muna að taka lyfin sín á réttum tíma eða rétt lyf, þau sem geta ekki gengið án stuðnings göngugrindar, hvað þá hjá þeim sem eru með stiga heima hjá sér og komast ekki leiðar sinnar innan eigin húsnæðis? Hvað með fólkið sem lifir á AB-mjólk og ristuðu brauði því þau eru ekki fær um að elda sér hollan og góðan mat? Hvað með allt þetta fólk sem er því miður orðinn of stór hópur hér á Akranesi? Þau sem mesta þörfina hafa, þurfa að sækja um þá þjónustu sem í boði er - rafrænt. Þessi þjóðfélagshópur er almennt ekki með sömu tæknikunnáttu og yngri kynslóðirnar svo þau þurfa að treysta á velvild aðstandenda til að eiga möguleika á áframhaldandi lífsgæðum. Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar fer hlutfall íbúa á vinnualdri lækkandi með árunum og hlutfall íbúa yfir 65 ára fer hækkandi, á landinu öllu en þar er Akranes auðvitað engin undantekning. Er ekki komin tími á breytingar til að halda betur utan um þennann vaxandi hóp fólks í samfélaginu okkar? Meiri félagsþjónustu? Meiri heimahjúkrun? Eða einfaldlega stækka hjúkrunarheimilið okkar til muna og skapa þannig betri lífsgæði fyrir eldra fólkið okkar og atvinnutækifæri í leiðinni? Ég flutti á Akranes því hér er gott að ala upp börn, en er gott að eldast á Akranesi? Höfundur skipar 10. sætið á lista Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar