Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2026 10:52 Stuðningsmenn sjálfstæðis í Alberta veifa fána fylkisins á samstöðufundi í gær þar sem undirskriftarlistinn var opinberaður. AP/Jason Franson Aðskilnaðarsinnar í Alberta-fylki í Kanada, segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum til að kveða á um atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Samkvæmt lögum í fylkinu þarf 178 þúsund undirskriftir til að þvinga yfirvöld til að halda atkvæðagreiðslu um tiltekin málefni en aðskilnaðarsinnarnir sögðust í gær hafa safnað nærri því 302 þúsund.
Hópurinn sem safnað hefur þessum undirskriftum kallast „Stay free Alberta“ og hefur um nokkuð skeið kallað eftir því að ríkið fái sjálfstæði frá Kanada. Til stendur að halda kosningar í Kanada í október. Ríkisútvarp Kanada hefur eftir Mitch Sylvestre, forsvarsmanni SFA, að bæta eigi spurningu um sjálfstæði við kjörseðla í haust. Mitch Sylvestre, sem stýrir hópnum Stay Free Alberta.AP/Jason Franson Danielle Smith, forsætisráðherra Alberta, hefur áður sagt að ef nægilega margar undirskriftir safnast myndi hún halda atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Fyrst verður dómari þó að úrskurða í máli sem afkomendur frumbyggja í Alberta hafa höfðað. Þeir segja að atkvæðagreiðslan brjóti gegn samkomulagi sem yfirvöld í Kanada hafi gert við þá. Smith hefur sjálf sagt að hún vilji ekki að Alberta slíti sig frá Kanada, þó hún hafi gagnrýnt alríkisyfirvöld fyrir að takmarka getu íbúa fylkisins til að framleiða og selja olíu. Þá hefur hún einnig sagt að alríkisyfirvöld hafi haft of mikil afskipti af málefnum fylkisins. CBC hefur þó eftir Jefrrey Rath, lögmanni SFA, að í raun skipti atkvæðagreiðslan eða dómsmálið ekki máli. Það sé ekki hægt að hunsa vilja hundraða þúsunda kjósenda. Annar hópur sem kallast „Forver Canadaian“ safnaði 404.293 undirskriftum í Alberta í desember. Þá hafði fólk skrifað undir ákall um að stjórnvöld í fylkinu gerðu það að opinberri stefnu að vera áfram hluti af Kanada. Kannanir hafa sýnt að færri en þrjátíu prósent af íbúum Alberta styðji sjálfstæði frá Kanada. Birtu persónuupplýsingar kjósenda á netinu Annar hópur aðskilnaðarsinna birti á netinu í fyrra gagnagrunn með persónuupplýsingum rúmlega 2,9 milljóna kjósenda í Alberta. Það hefur þegar vakið spurningar um undirskriftarlista SFA og hafa margir kallað eftir því að farið verði ítarlega yfir listann, þar sem áðurnefndar upplýsingar hefðu getað verið notaðar til að falsa undirskriftir fólks. Samkvæmt CBC munu starfsmenn kosningaeftirlits í Alberta á endanum fara yfir undirskriftirnar og kanna hvort þær séu réttar og hvort finna megi tvítekningar. Þá verður fólk valið af listanum af handahófi og samband haft við það til að kanna hvort það hafi raunverulega skrifað undir. Jeffrey Rath, lögmaður og einn forsvarsmanna Stay Free Alberta.AP/Jason Franson Fari svo að atkvæðagreiðsla verði haldin og sjálfstæði samþykkt, felur það ekki sjálfkrafa í sér að Alberta verði aðskilið Kanada. Sérfræðingar sögðu AP fréttaveitunni að viðræður við alríkisstjórnvöld í Kanada myndu fara fram og svo þykir líklegt að fjöldi dómsmála muni hægja á ferlinu. Langvarandi gremja í Alberta Alberta er mjög stórt fylki í vesturhluta Kanada, en þar er mestallri olíu landsins dælt úr jörðu. Fylkið aflar þannig gífurlegra tekna fyrir alríkið Kanada og það hefur lengi valdið gremju í fylkinu, þar sem mörgum íhaldssömum íbúum finnst alríkið ekki koma nægilega vel fram við þá. Fjórðu stærstu olíulindir heimsins, sem vitað er um, má finna undir yfirborðinu í Alberta. Þær stærstu eru í Venesúela, Sádi-Arabíu og Íran. Ástandið versnaði töluvert í valdatíð Justins Trudeau en sérfræðingar segja það hafa skánað og dregið hafi úr stuðningi við sjálfstæði síðan hann hætti og Mark Carney tók við sem forsætisráðherra. Trump-liðar líta hýrum augum til fylkisins Framtíð Alberta hefur einnig spilað rullu í árásum Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, gegn Kanada. Hann hefur ítrekað lýst því yfir að hann vilji gera Kanada hluta af Bandaríkjunum og hefur hann sagst vilja beita efnahagsaðgerðum til að þvinga Kanadamenn til að ganga inn í Bandaríkin. Trump og ráðamenn í ríkisstjórn hans hafa rennt hýrum augum til Alberta og hafa forsvarsmenn SFA fundað með embættismönnum frá Bandaríkjunum á undanförnum mánuðum. Þeirra á meðal er Rath, sem hefur sagt að hann hafi meðal annars talað við Bandaríkjamenn um að taka upp dollarann í Alberta og mögulegt lán til að koma sjálfstæðu ríki á laggirnar, samkvæmt Financial Times. Scott Bessent, fjármálaráðherra Trumps, lýsti í upphafi ársins, Alberta-fylki sem „náttúrulegum félaga“ Bandaríkjanna. Vísaði hann sérstaklega til auðlinda fylkisins og til þess að mögulega yrði atkvæðagreiðsla um sjálfstæði. Þetta hefur meðal annars leitt til áhyggja í Kanada um erlend afskipti af málefnum Alberta. Ungir Hollendingar græða á deilunum CBC birti í gær niðurstöður rannsóknar blaðamanna á mörgum YouTube-rásum þar sem menn og konur sem þóttust vera frá Alberta ýttu undir aðskilnað fylkisins frá Kanada. Í að minnsta kosti einu tilfelli var um að ræða kanadískan leikara sem hafði verið beðinn um að senda inn nokkur myndbönd í prufum fyrir hlutverk. Þegar blaðamenn höfðu samband við hann sagðist hann ekki hafa hugmynd um hvað myndböndin hefðu verið notuð. Bandarískur leikari sem blaðamennirnir fundu hafði svipaða sögu að segja. Uppruni þessara myndbanda var rakinn til Hollands og umsvifamikils viðskiptamódels þar sem ungir menn nota leikara til að græða fúlgur fjár á myndböndum á YouTube þar sem fjallað er um umdeild málefni. Forsvarsmenn þessara rása, en þær eru sagðar tólf talsins, segjast ekki tengjast neinum pólitískum öflum. Þeir segja að hagnaður af auglýsingum á YouTube, það er að segja, að fá eins mikið áhorf og þeir geta, sé þeirra eina markmið. Farið er yfir rannsókn CBC í spilaranum hér að neðan.
Kanada Donald Trump Bensín og olía Tengdar fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. 1. maí 2026 00:02 Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum Ríkisstjórn Kanada stefnir að því að draga verulega úr því hve mikið ríkið reiðir á bandaríska vopnaframleiðendur. Til stendur að verja fúlgum fjár, sem hafa í gegnum árin endað í höndum bandarískra vopnaframleiðenda, í að byggja upp hergagnaiðnað í Kanada. 16. febrúar 2026 11:48 Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demkrötum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær og mynduðu meirihluta sem samþykkti að fella niður tolla sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á Kanada í fyrra. 12. febrúar 2026 06:44 Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það. 10. febrúar 2026 07:24 Mest lesið Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira
Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. 1. maí 2026 00:02
Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum Ríkisstjórn Kanada stefnir að því að draga verulega úr því hve mikið ríkið reiðir á bandaríska vopnaframleiðendur. Til stendur að verja fúlgum fjár, sem hafa í gegnum árin endað í höndum bandarískra vopnaframleiðenda, í að byggja upp hergagnaiðnað í Kanada. 16. febrúar 2026 11:48
Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Sex Repúblikanar greiddu atkvæði með Demkrötum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær og mynduðu meirihluta sem samþykkti að fella niður tolla sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði á Kanada í fyrra. 12. febrúar 2026 06:44
Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það. 10. febrúar 2026 07:24