Jöfn tækifæri barna eru ekki sjálfgefin, við þurfum að tryggja þau Unnur Ólöf Tómasdóttir skrifar 6. maí 2026 08:00 Það á ekki að skipta máli hvar barn býr eða við hvaða aðstæður það elst upp þegar kemur að þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi. Rannsóknir sýna að slík þátttaka hefur víðtæk jákvæð áhrif, hún eykur líkamlega og andlega heilsu, styrkir félagsfærni og eflir sjálfsmynd barna. Samt er raunveruleikinn sá að aðgengi er ekki jafnt. Sífellt hærri ferðakostnaður er orðinn veruleg hindrun fyrir margar fjölskyldur, sérstaklega á landsbyggðinni. Þegar kostnaður við að sækja æfingar og keppnir verður of hár, minnkar þátttaka. Börn hætta, eða fá aldrei tækifæri til að byrja. Þannig verða til ójöfn tækifæri sem geta haft langvarandi áhrif á lífsgæði og möguleika barna. Við viljum samfélag sem styður fjölskyldur og tryggir raunverulegt aðgengi allra barna að íþróttum og tómstundum. Þess vegna viljum við draga úr ferðakostnaði ungmenna og vinna markvisst með íþróttahreyfingunni, sveitarfélögum og stjórnvöldum að raunhæfum lausnum. Þar þarf ríkið að koma skýrar að borðinu, meðal annars með auknum stuðningi við íþróttastarf og markvissari útfærslu á niðurgreiðslu flugs, til dæmis með styrkingu Loftbrúar. Slíkar aðgerðir eru ekki kostnaður heldur fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka í sterkara samfélagi. En verkefnið stoppar ekki þar. Það er sérstaklega mikilvægt að horfa til þátttöku fatlaðra barna. Hindranirnar liggja sjaldnast hjá barninu sjálfu, heldur í umhverfinu, í því hvernig við skipuleggjum starf, mótum viðhorf og tryggjum aðgengi. Hugmyndafræði algildrar hönnunar minnir okkur á að það er á ábyrgð samfélagsins að skapa aðstæður þar sem allir geta tekið þátt frá upphafi, á eigin forsendum. Til þess að það verði að veruleika þarf meira en góðan vilja. Það krefst aukinnar þekkingar, markvissrar þróunar á starfsháttum og hagnýtra lausna í daglegu starfi. Við þurfum að efla fræðslu til þjálfara og starfsfólks, styrkja samstarf milli skóla, íþróttafélaga og fjölskyldna og tryggja að úrræði séu sveigjanleg og aðgengileg. Þátttaka fatlaðra barna á ekki að vera undantekning, hún á að vera sjálfsögð. Þegar við tryggjum aðgengi allra barna, óháð búsetu eða aðstæðum, erum við ekki aðeins að fjölga iðkendum. Við erum að byggja réttlátara og sterkara samfélag þar sem öll börn fá tækifæri til að njóta sín og leggja sitt af mörkum. Við berum öll ábyrgð og nú þurfum við að láta verkin tala. Höfundur er í 16.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi, að ljúka B.S.-gráðu í iðjuþjálfunarfræði og er móðir þriggja barna á Egilsstöðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar