Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Árni Sæberg skrifar 6. maí 2026 15:52 Páll Steingrímsson, Þóra Arnórsdóttir og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Vísir Ríkisútvarpið og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi starfsmaður þess, hafa verið sýknuð af öllum kröfum Páls Steingrímssonar skipstjóra. Hann krafðist milljóna króna í miskabætur vegna ætlaðra brota starfsmanna Rúv gegn friðhelgi einkalífs hans.
Þetta staðfestir Berglind Svavarsdóttir, lögmaður Þóru í málinu, en dómur var kveðinn upp í málinu klukkan 15. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Þinghald í málinu var lokað en vænta má þess að dómur verði birtur innan skamms. Líkt og Vísir fjallaði um á sínum tíma krafðist Páll fjögurra milljóna króna vegna meintrar byrlunar fyrrverandi eiginkonu Páls, veikinda hans í kjölfarið og meints stuldar á síma hans. Starfsmenn Ríkisútvarpsins hefðu tekið við símanum, skoðað og afritað gögn úr honum og komið til blaðamanna Heimildarinnar og Kjarnans, sem hafi í framhaldinu unnið fréttir upp úr gögnunum. Í stefnu Páls sagði að á því væri byggt að um væri að ræða refsiverð og skaðabótaskyld hegningarlagabrot sem brytu gegn rétti Páls til friðhelgi einkalífs og sem ekki yrði réttlætt með heimildum blaðamanna til gagnaöflunar. Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra ákvað í lok september árið 2024 að hætta rannsókn í málinu. Sex blaðamenn fengu réttarstöðu sakbornings í málinu auk fyrrverandi eiginkonu Páls.
Byrlunar- og símastuldarmálið Dómsmál Fjölmiðlar Samherjaskjölin Ríkisútvarpið Tengdar fréttir Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. 15. október 2024 10:49 Páll leitar til ríkissaksóknara Páll Steingrímsson fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja hefur kært til ríkissaksóknara ákvörðun Lögreglunnar á Norðurlandi að fella niður rannsókn á meintri byrlun, afritun á upplýsingum úr síma og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls, staðfestir kæruna við Ríkisútvarpið. 25. október 2024 11:48 Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Sjá meira
Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. 15. október 2024 10:49
Páll leitar til ríkissaksóknara Páll Steingrímsson fyrrverandi skipstjóri hjá Samherja hefur kært til ríkissaksóknara ákvörðun Lögreglunnar á Norðurlandi að fella niður rannsókn á meintri byrlun, afritun á upplýsingum úr síma og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls, staðfestir kæruna við Ríkisútvarpið. 25. október 2024 11:48