Á hvaða ferðalagi er Sjálfstæðisflokkurinn? Ingólfur Sverrisson skrifar 7. maí 2026 08:42 Í mínu ungdæmi var Sjálfstæðisflokkurinn eindreginn fylgjandi vestrænni samvinnu og stóð á þeim grunni dyggilegan vörð gegn ágangi einræðisafla í Austur-Evrópu. Stundum þótti okkur í ungliðahreyfingum annarra flokka þessi afstaða allt að því öfgakennd en Sjálfstæðismenn gáfu sig hvergi og þreyttust aldrei á að brýna landsmenn til virkrar þátttöku í samtökum vestrænna þjóða og treysta með því sjálfstæði Íslands og fullveldi. Aldrei töluðu þeir um hvað við værum lítil og pervisin þjóð sem aðrar þjóðir meginlandsins vildu leggja undir sig og mergsjúga – aldrei. Þess í stað stóðu Sjálfstæðismenn fast með öðrum lýðræðisflokkum í samstarfinu með ríkjum á meginlandinu og voru ekki einlægt að velta fyrir sér hvað einstaklingar þar sögðu um þetta og hitt eins og þeir eru orðnir mjög uppteknir af um þessar mundir svo að jaðrar stundum við ofsóknaræði. Geta ekki einu sinni samþykkt undanbragðalaust að ræða við vini okkar í Evrópu og sjá hvað út úr því kemur. Slík er nú staðan á flokknum sem kennir sig við sjálfstæði. Gefa sér mjög óhagstæðar niðurstöður fyrirfram úr slíkum viðræðum og eru með böggum hildar vegna ótta um yfirgang okkar bestu samstarfsþjóða í gegnum árin. Hvað ætli gamlir forystumenn þessa góða flokks segðu ef þeir fréttu af þvílíkri framgöngu? Þeim yrði áreiðanlega ekki rótt og þess vegna eins gott að hlífa þeim við að upplýsa stöðuna í flokknum þeirra! Nú gerist það hins vegar að nokkrir góðir og gegnir Sjálfstæðismenn sjá að flokkurinn þeirra er komin út í móa með málið og óska eftir því að forystan doki við. Pétur J. Eiríksson kveður sér hljóðs og segir í Mbl. um framgöngu flokksins: „Sjónarhornið er þröngt og orðræðan einhæf. Flokkurinn talar líkt og aðild að ESB hafi aðeins ógnir í för með sér.” Síðan segir hann: „Kjósendur þekkja vel til í Evrópu og vita að málið hefur margar hliðar sem kallar á góðar upplýsingar og vandaða umræðu.” Þegar virtur flokksmaður kvartar um að hans áður frjálslyndi flokkur sé orðinn þröngsýnn og einhæfur í málflutningi sínum um þessi mál, er skörin farin að færast svo mikið upp í bekkinn að tímabært er fyrir forystuna að meta stöðuna og baráttuaðferðir upp á nýtt enda fylgið á hraðri leið til annarra flokka. Pétur minnir á að áður hafi flokkurinn hans talað tæpitungulaust með öðrum frjálslyndum flokkum í Evrópu og staðið í stafni í þeirri baráttu hér á landi. Nú er auðvitað frá mínum sjónarhóli séð ekki ástæða til að harma það að umræddur flokkur verði lítill og áhrifalaus á hægri kanti íslenskra stjórnmála ef hann með því væri ekki hreinlega að spilla fyrir frekari samstöðu vestrænna þjóða og árangri við óblíð öfl á alþjóðavettvangi. Það er raunverulegt alvörumál og því ástæða til að óska eftir málefnalegri umræðu um þá sjálfsögðu ósk að ljúka viðræðum við ESB um fulla aðild Íslands. Þessi þröngsýni úr Sjálfstæðisflokknum, sem Pétur hefur áhyggjur af, er auðvitað farinn að rugla allri skynsamlegri umræðu um málefni sem þjóðarnauðsyn kallar á að niðurstaða fáist í. Það er auðvitað engin niðurstaða að þvæla málið endalaust og tala sífellt um einhver ummæli eða leynimakk sem eru andstæð okkar málstað og láta þar við sitja. Gefast bara upp án þess að láta reyna á hlutina í viðræðum, sem margir forystumenn Sjálfstæðisflokksins eru lafhræddir við. Tröllasögur um að við verðum í slíkum viðræðum plötuð inn í ESB án þess að gera okkur grein fyrir því, er auðvitað í besta falli til marks um alvarlega minnimáttarkennd og dómgreindarleysi. Allir sem hafa sett sig inn í málið vita að engin þátttaka Íslands í ESB verður að veruleika fyrr en eftir síðari atkvæðagreiðsluna sem öll þjóðin tekur þátt í og kveður þá upp loka útskurð í málinu eftir að hafa séð – en ekki bara heyrt af – samningi við ESB. Ef umræddur samningur er óhagstæður, að dómi meirihluta landsmanna, verður hann örugglega felldur, en samþykktur lítist fólki vel á niðurstöðurnar. Svo einfalt er það. Allt tal um að okkur verði smeygt inn í samtökin án ofangreinds aðdraganda eru auðvitað rangar fullyrðingar og að engu hafandi. Ekkert slíkt getur gerst og þeim til lítils sóma sem því halda fram. Þvílík umræða er meira en lítið þröng eins og Pétur J. Eiríksson hefur bent á og margir geta tekið heils hugar undir. Þegar allt þetta er haft í huga er ekki að furða þótt spurt sé á hvaða ferðalagi Sjálfstæðisflokkurinn er eða getur verið að þetta sé bara enn ein ferðin án fyrirheits. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar