Um kennaranám Ása Lind Finnbogadóttir skrifar 7. maí 2026 11:16 Margir hafa skoðanir á skólakerfinu, kennurum og kennaranámi. Oft án raunverulegrar vitseskju um þau mál. Það að hafa verið í skóla gerir þig ekki að sérfræðingi um kennslu. En í tilefni skrifa kollega míns, Andra Þorvarðarsonar langar mig að koma fram með nokkur atriði. Ég tek það fram að ég var ekki í 5 ára kennaranámi þar sem ég er með master í mínu fagi og tók svo eins árs kennsluréttindi eins og margir framhaldsskólakennarar. Mastersritgerðin mín í siðfræði kennslu fjallaði að sumu leyti um kennaranámið og gagnrýndi ég að ekki væri hagnýtur siðfræðikúrs í því. Það er því ýmislegt sem má bæta í kennaranáminu eins og öðrum fögum. Helsta gagnrýnin frá kennaranemum sjálfum er að æfingakennslan er allt og lítill hluti af náminu. Það er gefið að æfingakennsla sé besti undirbúningurinn því erfitt er að læra á bók hvernig á að kenna. Ástæðan fyrir því að æfingakennslan er ekki stærra hlutfall af náminu er fjárhagslegur. Stjórnvöld mættu gjarnan veita meira fjármagni til menntakerfisins sem heild þ.m.t. kennaranáminu. Mér fannst hins vegar grein Andra full af rangfærslum og áróðri sem er gjörsamlega ólík minni reynslu af kennaranámi. Það er ekki rétt að þar séu eingöngu langir fyrirlestrar um það hvað fyrirlestrar eru slæmar kennsluaðferðir. Á þessu eina ári sem ég tók var vissulega töluvert af fræðilegum grunni og kenningum enda það eðli háskólanáms að miklu leyti. Við lærðum um margar ólíkar kennsluaðferðir og fengum að prófa þær á hvert öðru í tímum. Einnig fengum við umfjöllun um siðareglur og hvernig eigi að kenna um siðferðileg álitamál. Ég hefði samt vilja fá hagnýtan siðferðikúrs þar sem unnið væri með klípusögur um raunveruleg atvik sem gætu komið upp í kennslu. Mér fannst skrítið að ekki væri einn slíkur kúrs í 5 ára kennaranámi. Reyndar var slíkur kúrs í kennaranáminu á Akureyri en ekki í HÍ. Ég er sammála Andra að ýmislegt megi bæta í kennaranámi og þá helst að auka við tíma í æfingakennslu. Til þess þarf hins vegar fjármagn. Stjórnvöld síðustu áratuga hafa hins vegar ekki verið þekkt fyrir að fullfjármagna skólakerfið. Meira að segja við inngildingu skóla án aðgreiningar voru bekkir ekki minnkaðir og nægilega margt fagfólk og stuðningur.ráðið inn á sómasamlegum launum. Það er því ekkert skrítið að námsárangur íslenskra barna hafi að meðaltali hrakað. Fjöldi barna með erlendan bakgrunn sem hafa íslensku ekki að móðurmáli er auðvitað líka ástæða fyrir að námsárangur og læsi mætir ýmsum áskorunum. Að halda að kennarar séu eitthvað verri nú en áður (eða að þau noti ekki réttar kennsluaðferðir í lestri) er því ekki bara rangt heldur líka skaðlegt fyrir umræðuna. Það er ekki gagnlegt að tala niður skólana og kennarana eða kennaranámið. Það er ekki að fara að bæta læsi eða námsárangur nemenda. Skólekerfið þarf meira fjármagn, minnka þarf bekki og laun þurfa að hækka bæði hjá kennurum og stuðngsaðilum til að gott fólk sæki í störfin. Skólakerfið er einn af hornsteinum hvers samfélags og okkur þarf að þykja vænt um það. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar