Rasískur bolur fyrir kappakstur Trump tekinn úr umferð Kjartan Kjartansson skrifar 8. maí 2026 09:11 Bolurinn sem Indycar setti í sölu með slagorðinu „One nation, one race“ sem getur bæði þýtt „Ein þjóð, ein keppni“ og „Ein þjóð, einn kynþáttur“. Skjáskot Bolur sem var seldur í tengslum við fyrirhugaðan kappakstur á götum Washington-borgar í sumar var kippt úr umferð vegna óheppilegs slagorðs sem var letrað á hann. Slagorðið mátti hæglega skilja sem rasískt.
Mörgum aðdáendum bandarísku Indycar-kappakstursmótaraðarinnar varð hvumsa við þegar hún setti í sölu stuttermabol tengdan Washington-kappakstrinum sem á að fara fram í ágúst í vikunni. Á honum mátti sjá mynd af ökuþór taka sæti styttu Abrahams Lincoln í minnisvarðanum um hann sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar. Þar stóð einnig á ensku „One nation, one race“ eða „ein þjóð, ein keppni“ á íslensku. Vandinn skapaðist hins vegar þar sem enska orðið getur bæði þýtt „keppni“ og „kynþáttur“. Miklar umræður sköpuðust um bolinn og slagorðið sem hefði fallið vel í kramið hjá hvítkufluðum Kú Klúx Klan-liðum. Margir furðuðu sig á því að mótaröðin hefði samþykkt hönnunina og sett hana í sölu. Bolurinn væri í besta falli taktlaus og í versta falli rasískur. Tekinn úr sölu vegna viðbragðanna Indycar skellti fljótlega í bakkgír og tók bolinn úr sölu. Talsmaður mótaraðarinnar segir fjölmiðlinum Indystar í Indianapolis að það hafi verið gert eftir viðbrögð viðskiptavina. „Við skiljum að sumum einstaklingum hafi fundist orðalagið áhyggjuefni og við höfum því bætt úr stöðunni,“ sagði talsmaðurinn sem vildi ekki fara út í þá sálma hvernig hönnunin slapp í gegnum nálaraugað. Bandarískir ráðherrar og borgarstjóri Washington-borgar kynntu fyrirhugaða kappaksturinn fyrir framan þinghúsið í mars.Vísir/EPA Kappaksturinn sjálfur á að fara fram helgina 21.-23. ágúst. Hann var skipulagður með afar skömmum fyrirvara eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um hann í janúar. Keppnin á að vera hluti af hátíðarhöldum vegna 250 ára afmælis Bandaríkjanna. Fyrirhuguð brautin eftir götum borgarinnar liggur meðal annars fram hjá Smithsonian-safninu, listasafni Bandaríkjanna og niður Pennsylvaníustræti sem Hvíta húsið stendur við.
Bandaríkin Donald Trump Akstursíþróttir Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Sjá meira