Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 07:15 Fyrir réttum 76 árum á þessum degi flutti Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands, ávarp þar sem hann kallaði eftir því kola- og stálframleiðsla Evrópuríkja yrði sett undir yfirþjóðlega stjórn í þeim yfirlýsta tilgangi að koma í veg fyrir frekari stríð í álfunni. Þetta er ágætlega þekkt. Minna hefur hins vegar verið fjallað um það að í yfirlýsingunni sagði hann þetta einungis fyrsta skrefið. Lokaskrefið væri að til yrði á endanum evrópskt sambandsríki. Tekin hafa verið sífellt fleiri skref síðan í áttina að lokamarkmiðinu og er þróunin í dag komin langleiðina í þeim efnum. Helztu stofnanir Evrópusambandsins eru þannig federalískar í eðli sínu og leitun er að forystumönnum innan þess á liðnum árum sem ekki hafa verið yfirlýstir stuðningsmenn markmiðsins. Í stjórnarsáttmála síðustu ríkisstjórnar Þýzkalands var þannig til að mynda lýst yfir stuðningi við „áframhaldandi“ þróun sambandsins í átt að sambandsríki. Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóri Evrópusambandsins, lýsti því að sama skapi yfir í ræðu í janúar að á þeim sviðum þar sem sambandið væri þegar orðið federalískt nyti það virðingar í heiminum en ekki á þeim sviðum þar sem það væri ekki enn raunin og nefndi þar utanríkis- og varnarmál. Hvaða alþjóðastofnun hefur enda til að mynda eigin ríkisborgararétt, gjaldmiðil, seðlabanka, hæstarétt, löggjafarþing, vegabréf og ökuskírteini svo eitthvað sé nefnt? Hér á landi starfa samtök sem eru ekki aðeins hlynnt inngöngu Íslands í Evrópusambandið heldur einnig því að sambandið verði endanlega að sambandsríki með okkur innanborðs. Evrópuhreyfingin, regnhlífarsamtök hérlendra Evrópusambandssinn, eru þannig aðili að evrópsku samtökunum European Movement International sem haft hafa það meginmarkmið frá stofnun þeirra, skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar, að til yrði evrópskt sambandsríki. Forseti European Movement International, Guy Verhofstadt, var sem slíkur heiðursgestur á landsþingi Viðreisnar síðasta haust þar sem hann kallaði ekki eftir evrópsku sambandsríki heldur sagði að Evrópusambandið þyrfti að verða að heimsveldi (e. empire). Hlaut hann standandi lófatak að ræðunni lokinni. Í umræðum um það hvort Ísland eigi að hefja umsóknarferli að sambandinu á ný er ekki sízt mikilvægt að hafa í huga hvert það stefnir. Þetta er stefnan. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Fyrir réttum 76 árum á þessum degi flutti Robert Schuman, þáverandi utanríkisráðherra Frakklands, ávarp þar sem hann kallaði eftir því kola- og stálframleiðsla Evrópuríkja yrði sett undir yfirþjóðlega stjórn í þeim yfirlýsta tilgangi að koma í veg fyrir frekari stríð í álfunni. Þetta er ágætlega þekkt. Minna hefur hins vegar verið fjallað um það að í yfirlýsingunni sagði hann þetta einungis fyrsta skrefið. Lokaskrefið væri að til yrði á endanum evrópskt sambandsríki. Tekin hafa verið sífellt fleiri skref síðan í áttina að lokamarkmiðinu og er þróunin í dag komin langleiðina í þeim efnum. Helztu stofnanir Evrópusambandsins eru þannig federalískar í eðli sínu og leitun er að forystumönnum innan þess á liðnum árum sem ekki hafa verið yfirlýstir stuðningsmenn markmiðsins. Í stjórnarsáttmála síðustu ríkisstjórnar Þýzkalands var þannig til að mynda lýst yfir stuðningi við „áframhaldandi“ þróun sambandsins í átt að sambandsríki. Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóri Evrópusambandsins, lýsti því að sama skapi yfir í ræðu í janúar að á þeim sviðum þar sem sambandið væri þegar orðið federalískt nyti það virðingar í heiminum en ekki á þeim sviðum þar sem það væri ekki enn raunin og nefndi þar utanríkis- og varnarmál. Hvaða alþjóðastofnun hefur enda til að mynda eigin ríkisborgararétt, gjaldmiðil, seðlabanka, hæstarétt, löggjafarþing, vegabréf og ökuskírteini svo eitthvað sé nefnt? Hér á landi starfa samtök sem eru ekki aðeins hlynnt inngöngu Íslands í Evrópusambandið heldur einnig því að sambandið verði endanlega að sambandsríki með okkur innanborðs. Evrópuhreyfingin, regnhlífarsamtök hérlendra Evrópusambandssinn, eru þannig aðili að evrópsku samtökunum European Movement International sem haft hafa það meginmarkmið frá stofnun þeirra, skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar, að til yrði evrópskt sambandsríki. Forseti European Movement International, Guy Verhofstadt, var sem slíkur heiðursgestur á landsþingi Viðreisnar síðasta haust þar sem hann kallaði ekki eftir evrópsku sambandsríki heldur sagði að Evrópusambandið þyrfti að verða að heimsveldi (e. empire). Hlaut hann standandi lófatak að ræðunni lokinni. Í umræðum um það hvort Ísland eigi að hefja umsóknarferli að sambandinu á ný er ekki sízt mikilvægt að hafa í huga hvert það stefnir. Þetta er stefnan. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar