Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Freyja Þórisdóttir skrifar 9. maí 2026 07:50 Lögreglustöð eitt sinnir meðal annars verkefnum í miðbæ Reykjavíkur. Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á skemmtistað í Reykjavík en þar voru dyraverðir búnir að taka til hliðar einstakling sem hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar jafnframt því sem hún aðstoðaði starfsfólk bráðamóttökunnar vegna ölvaðs manns sem neitaði að fara.
Er þetta meðal helstu mála sem skráð voru í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Alls voru rúm níutíu mál skráð og að minnsta kosti tveir gistu í fangaklefa fram á morgun. Þá er sagt frá því í dagbókinni að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu á bráðamóttöku vegna ölvaðs einstaklings sem var til vandræða. Þá var reynt að koma einstaklingnum heim til sín, en þegar þangað var loks komið bjó einstaklingurinn sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk og sveifla í átt að lögreglumönnum. Var hann því handtekinn og í kjölfarið færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa þar til rennur af honum víman og hægt verður að tala við hann. Lögregla var kölluð til á skemmtistað en þar voru dyraverðir með einstakling í tökum en sá hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögreglumenn fjarlægðu einstaklinginn og hélt hann sína leið eftir skýrslutöku. Annað útkall varð á skemmtistað þar sem dyraverðir þurftu að fjarlægja óviljugan einstakling með aðstoð lögreglu. Hringt í foreldrana Lögreglustöð þrjú sinnir meðal annars verkefnum í Kópavogi en þar var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna barna sem neituðu að yfirgefa verslunarmiðstöð. Í sama umdæmi var tilkynnt um eld í ruslageymslu fjölbýlishúss. Slökkvilið sá um að slökkva eldinn og ekkert tjón varð á fólki. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað í verslun en sá grunaði var látinn laus að lokinni skýrslutöku. Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna í nótt. Þá var bifreið stöðvuð þar sem ökumaður hennar var grunaður um að hafa ekið á 91 km/klst þar sem hámarkshraði við bestu aðstæður er 40 km/klst. Einn ungur ökumaður var sviptur bráðabirgðaökuréttindum sínum og var haft samband við foreldra hans sökum aldurs.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira