Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Freyja Þórisdóttir skrifar 10. maí 2026 08:06 Eitthvað var um slagsmál í miðbænum í nótt og var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna mála á að minnsta kosti tveimur mismunandi skemmtistöðum. Vísir/Vilhelm Ýmislegt gekk á í nótt og hafði lögreglan afskipti af fjölda ungmenna af mismunandi ástæðum. Fullorðinn maður var handtekinn á skemmtistað en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri og var haft samband við foreldra þeirra. Maður var ofurölvi og hafði sofnað á tröppum veitingastaðar í Reykjavík en hann var vakinn og hélt í kjölfarið sína leið.
Þetta er meðal þess helsta sem skráð var í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Það gistu að minnsta kosti sjö í fangaklefa og alls voru hundrað og tvö mál skráð á tímabilinu. Mál í Miðbænum Meðal þeirra mála sem höfðu að gera með ungmenni var handtaka fullorðins einstaklings á skemmtistað í Reykjavík en með honum, sem var mjög ölvaður, voru þrjú ungmenni undir aldri. Foreldrar þeirra voru látnir vita af málinu og ræddu þau, ásamt fulltrúa barnaverndar, við lögreglu á lögreglustöð 1. Var maðurinn vistaður í fangaklefa þar til rynni af honum víman og hægt væri að ræða við hann. Hann hafði sýnt af sér ofbeldishegðun og hótað lögreglumönnum líkamsmeiðingum. Lagt var hald á eggvopn sem fannst við öryggisleit á einstaklingi sem grunaður var um vörslu fíkniefna. Annar einstaklingur var það illa áttaður vegna ölvunar að vinum hans tókst ekki að koma honum heim og óskuðu eftir aðstoð lögreglu við verkið. Haft afskipti af ökumönnum Fjöldi ökumanna var stöðvaður í akstri og var það yfirleitt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis en stundum vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn var vistaður í fangaklefa þar til rynni af honum víman eftir að lögreglan þurfti að hafa afskipti af honum þar sem sást til hans, í annarlegu ástandi, vera á gangi á milli bíla. Tilkynnt var um unga menn sem voru að slá golfboltum í átt að bílasölum í Reykjavík en talsvert tjón varð á bifreiðum eftir golfboltana. Eignaspjöll voru unnin á biðstöð strætó í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, en hún sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti. Í sama umdæmi var lögregla kölluð til vegna unglinga sem sátu í anddyri verslunar og voru að trufla viðskiptavini. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað í verslun en var hinn grunaði látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Næturlíf Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira