„Mikið kaos en ekki spurning að þarna var brot“ Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 19:15 Mikel Arteta er bara tveimur sigrum frá því að skila Arsenal Englandsmeistaratitli, og auk þess kominn með liðið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Getty/Justin Setterfield „Ég á aldrei eftir að gleyma þessum degi og þessari tölu,“ sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir 1-0 sigurinn gegn West Ham í dag sem færði liðið afar nálægt langþráðum Englandsmeistaratitli.
Þetta var 500. leikur Arteta með Arsenal, sem leikmaður eða knattspyrnustjóri, og án vafa einn sá allra eftirminnilegasti. Sigurinn þýðir að Arsenal er með fimm stiga forskot á Manchester City þegar Arsenal á aðeins tvo leiki eftir og City þrjá. Það sem gerði sigurinn enn dramatískari, þó að sigurmark Leandro Trossard kæmi seint, var að mark var dæmt af West Ham seint í uppbótartíma. Arteta er ekki í vafa um að það hafi verið rétt að gera, vegna brots á David Raya markverði, en hrósaði dómurum leiksins fyrir að þola pressuna eins og sjá má í viðtalinu hér að neðan. Klippa: Arteta eftir dramatíkina gegn West Ham „Þetta var tilfinningarússíbani. Við vissum að þetta yrði mjög erfitt enda þeir að berjast fyrir lífi sínu og við að reyna að vinna deildina. Svo mikið undir,“ sagði Arteta. „Við byrjuðum leikinn vel, fengum þrjú færi en náðum ekki að gera útslagið. Við þurftum svo að gera breytingu þegar Ben [White] meiddist og aðlagast því, en við lögðum allt í sölurnar til að skora og mér fannst við verðlaunaðir fyrir það hugrekki. Martin [Ödegaard] átti ótrúlega rispu til að hjálpa okkur að vinna leikinn ásamt Leo [Trossard] og svo David [Raya] sem átti ótrúlega markvörslu einn gegn sóknarmanni. Svo var þetta auðvitað umdeild og stór ákvörðun í lokin um að dæma markið af. Þegar ég hef þurft að vera gagnrýninn þá hef ég verið það á þessari leiktíð en núna verð ég að hrósa dómaranum,“ sagði Arteta. „Það var svo mikið kaos þarna og mikið af mönnum en þegar maður sér myndina skýrt þá er ekki spurning að þarna var brot,“ bætti hann við. En hvernig leið honum á því augnabliki þegar stöðutaflan sýndi 1-1? „Ég veit ekki. Við áttum alltaf tvo leiki eftir en við reyndum allt til að vinna í dag og þegar maður gerir það, eins og við höfum gert á þessari leiktíð, þá ætti maður að verða verðlaunaður fyrir það og þannig var það hjá okkur núna. Maður verður að geta unnið í alls konar aðstæðum og það höfum við gert á þessari leiktíð,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Sjá meira