„Slot og allir leikmennirnir að bíða eftir að tímabilið sé búið“ Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 23:29 Virgil van Dijk hefur stundum virst ansi pirraður í vetur. Getty/Carl Recine „Það á allur hópurinn mikið inni,“ sagði Aron Jóhannsson þegar þau Adda Baldursdóttir ræddu um Liverpool og stjórann Arne Slot í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport.
Slot virðist viss um að hann verði áfram stjóri Liverpool á næstu leiktíð, eftir að hafa skilað Englandsmeistaratitli í fyrra en valdið miklum vonbrigðum í vetur. „Ég held að það verði töluverðar breytingar,“ sagði Adda um leikmannahóp Liverpool fyrir sumarið og benti á vandamálin með varnarmannastöðurnar í liðinu. „Það er svo mikið af spurningum sem sitja eftir, eftir öll kaupin sem þeir gerðu fyrir tímabilið. Mögulega þarf að hreinsa til í hópnum. Það virðist vera pirringur, við höfum oft séð Van Dijk með vonda líkamstjáningu. Ég held það verði frekar tiltekt í leikmannahópnum en í stjórastöðunni,“ sagði Adda en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Messan: Umræða um Slot og Liverpool Þrátt fyrir 1-1 jafntefli við Chelsea í gær er Liverpool í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, með betri markatölu en Aston Villa, og fjórum stigum á undan Bournemouth í 6. sæti þegar tvær umferðir eru eftir. Sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð er því nánast tryggt en Liverpool er hins vegar tuttugu stigum á eftir toppliði Arsenal. Aron tók undir að svo virtist sem Slot vissi að hann yrði áfram stjóri Liverpool. „Hann alla vega talar þannig,“ sagði Aron og tók undir að gera þyrfti breytingar. „Frimpong er ekki nógu góður til að vera hægri bakvörður og ekki nógu góður til að vera kantmaður. Hann er keyptur frá Leverkusen sem spilaði 3-4-3, þannig að hann er vængbakvörður og þarf meiri hjálp með sér. Hann getur spilað hvoruga stöðuna [kant eða bakvörð]. Mín tilfinning er að Arne Slot og allir leikmennirnir séu að bíða eftir að leiktímabilið sé búið,“ sagði Aron. Liverpool keypti Florian Wirtz, Hugo Ekitike, Alexander Isak, Milos Kerkez, Jeremie Frimpong og Gioanni Leoni síðasta sumar en engum hefur tekist að slá í gegn á Anfield. „Ég myndi segja að Ekitike sé sá eini sem hefur verið á pari,“ sagði Aron. „Á tímabili líka Florian Wirtz. Hann tók svona tíu leiki þar sem maður skildi af hverju hann var keyptur,“ sagði Adda en Aron átti erfitt með að taka undir það. Umræðuna má sjá hér að ofan.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Sjá meira