Icelandair grunar flugmenn um græsku Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. maí 2026 17:49 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm Icelandair segir að þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna fullyrði að engar aðgerðir sé hafnar sem tengist kjaraviðræðum bendi margt til þess að um óformlegar aðgerðir sé að ræða, eftir nánari skoðun flugfélagsins. Vísbendingar séu um samantekin ráð og kallar forstjóri félagsins eftir því að allir aðilar sýni ábyrgð.
Greint var frá því í morgun að flugi Icelandair til Brussel hafi seinkað um rúma tvo tíma í morgun vegna forfalla hjá áhöfn. Þetta er þriðja áætlunarferð félagsins frá 5. maí sem ýmist er aflýst eða seinkað vegna skorts á áhafnarmeðlimum þegar forföll koma upp. Fyrst var um flug til Kaupmannahafnar að ræða sem aflýst var vegna mönnunar, síðan flugi til Seattle af sömu ástæðu og í dag seinkaði flugi til Brussel. Óásættanlegt ef rétt reynist „Þótt Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) fullyrði að engar aðgerðir séu hafnar er tengjast kjaraviðræðum, er margt sem bendir til þess eftir nánari skoðun félagsins á ástæðum þessara tilteknu raskana á flugi, að um óformlegar aðgerðir sé að ræða,“ segir í tilkynningu Icelandair. Segir að þær varði ákveðinn sveigjanleika sem sé nauðsynlegur frá degi til dags í flugrekstri. Óvenjulegt sé að ekki náist að manna flug þegar um forföll sé að ræða og séu vísbendingar um samantekin ráð og þrýsting að sýna ekki sveigjanleika í þessum aðstæðum. „Það er mikilvægt að allir aðilar sýni ábyrgð í þessari stöðu og það er óásættanlegt ef rétt reynist að verið sé að valda félaginu tjóni og farþegum óþægindum vegna óformlegra aðgerða. Staðan er krefjandi í flugrekstri um þessar mundir vegna óvissu í alþjóðaumhverfinu og hefur eldsneytisverð til að mynda tvöfaldast, en það er einn stærsti kostnaðarliður félagsins,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni forstjóra Icelandair. „Á sama tíma er um að ræða stétt sem nýtur framúrskarandi starfskjara, einna bestu kjara sem flugmönnum á Norðurlöndum bjóðast. Kjaraviðræðurnar eru nú á forræði Ríkissáttasemjara og hafa sinn gang þar. Það er brýnt að við náum skynsamlegum samningum sem allra fyrst.“
Flug Kjaramál Icelandair Vinnumarkaður Stéttarfélög Tengdar fréttir Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Flugi Icelandair til Seattle var aflýst í gærkvöldi með skömmum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Upplýsingafulltrúi Icelandair segist ekki vita af verkfallsaðgerðum en þetta er í annað sinn í vikunni sem flugi er skyndilega aflýst vegna mönnunar. 9. maí 2026 10:37 Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Sjá meira
Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Flugi Icelandair til Seattle var aflýst í gærkvöldi með skömmum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Upplýsingafulltrúi Icelandair segist ekki vita af verkfallsaðgerðum en þetta er í annað sinn í vikunni sem flugi er skyndilega aflýst vegna mönnunar. 9. maí 2026 10:37