„Við flytjum aldrei héðan“ Stefán Árni Pálsson skrifar 12. maí 2026 11:04 Heiðar og Anný hafa komið sér einstaklega vel fyrir fyrir utan borgina. Rétt fyrir utan bæjarmörkin býr brosmildur brimbrettakappi ásamt fallegu fjölskyldunni sinni. Hödd Vilhjálmsdóttir leit við hjá fjölskyldunni í Íslandi í dag á Sýn í gær.
Heiðar Loga Elíasson þekkja margir sem fyrsta atvinnumann Íslands á brimbretti en hann hefur marga fjöruna og jú ölduna sopið á ferlinum. Þessi mikli ævintýramaður varð um þrítugt svo heppinn að fella hugi saman með gamalli vinkonu sem er ekki síður haldin ævintýraþrá. Saman hafa þau komið sér fyrir á fallegu heimili við vatnið ásamt dóttur sinni sem heitir hvað annað en Eilíf Alda. En af hverju ákvað parið sem áður bjó í miðbænum að flytja út fyrir borgina? Vera nær náttúrunni „Okkur langaði fyrst og fremst að vera nær náttúrunni. Við erum bæði náttúrubörn og hér líður okkur bara best,“ segir Heiðar en áður bjuggu þau saman á Laugaveginum. „Við höfum verið að tala um að flytja á svæði eins og þetta en við vorum aldrei komin lengra með það. Svo er Anný að sýna mér eitthvað hús til sölu í Hvalfirði. Okkur fannst það svolítið langt í burtu og svo bara einhvern veginn rambaði hún á þetta og við bara buðum í þetta og seldum íbúðina á Laugavegi,“ segir Heiðar. „Við komum hingað og vorum bara seld. Þetta er nákvæmlega það sem við vorum að hugsa,“ segir Anný. „Ég held að við flytjum aldrei héðan,“ segir Heiðar en þau hafa ekki setið auðum höndum á framtíðarstaðnum. „Þegar við keyptum þetta voru þetta í rauninni tvö hús. Það var alrými og eldhús. Svo þurftum við að fara út til að komast inn á baðherbergi og út til að komast inn í svefnherbergi. Við tengdum saman byggingarnar og gerðum þetta að einni heild. Svo er búið að gera alveg ýmislegt síðan. Það er endalaust af verkefnum og svolítið lifandi umhverfi,“ segir Heiðar sem gat gert mikið sjálfur enda rekur hann sitt eigið smíðafyrirtæki ásamt vinum sínum. Hér að neðan má sjá innslagið í heild.
Ísland í dag Hús og heimili Brimbretti Mest lesið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira