Handbolti

„Of­boðs­lega stolt af því að standa hér sem sigur­vegari“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Hafdís Renötudóttir varði vel í marki Vals.
Hafdís Renötudóttir varði vel í marki Vals. Vísir/Anton Brink

Hafdís Renötudóttir varði 11 skot og aðstoðaði lið hennar, Val, að bera sigur úr býtum gegn ÍBV en sá sigur gerði það að verkum að Hlíðarendaliðið er Íslandsmeistari í handbolta kvenna. 

„Mér líður ótrúlega og mér fannst við standa okkur vel í þessum leik og bara í einvíginu öllu. Að mínu mati eigum við þennan sigur skilinn og erum verðugir Íslandsmeistarar,“ 

Hafdís varð fyrir fordómum vegna kynhneigðar sinnar af hendi stuðningsmanna ÍBV í öðrum leik liðanna og það mátti sjá að það tók á hana að spila í Vestmannaeyjum eftir það sem á undan var gengið. 

„Ég er bara ofboðslega stolt af því að standa uppi sem sigurvegari hér í kvöld í kvöld og að hafa tryggt okkur Íslandsmeistaratitilinn,“ sagði landsliðsmarkvörðurinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×