Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 10:59 Björgvin Páll, landsliðsmarkvörður í handbolta, lagði orð í belg varðandi atvik sem kom upp eftir leik tvö í úrslitaeinvígi Tindastóls og Grindavíkur í Síkinu á Sauðárkróki Vísir/Samsett Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta og leikmaður Íslandsmeistara Vals, kallar eftir meiri fagmennsku í umfjöllun í kjölfar atviks eftir leik Tindastóls og Grindavíkur í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta gær.
DeAndre Kane, stjörnuleikmaður Grindavíkur, sendi stuðningsfólki Tindastóls ítrekað fokkjúmerki, strax eftir leik, samhliða því sem hann fagnaði með eigin stuðningsmönnum sem einnig fjölmenntu í Síkið, þar sem Grindavík vann á endanum 86-83 í æsispennandi leik og er komið 2-0 yfir í einvíginu. Björgvin Páll segist elska að fylgjast með körfuboltanum sem og DeAndre Kane þegar að hann spilar, enda sé Kane litríkur og skemmtilegur karakter. „Sem og frábær körfuboltamaður. En hérna finnst mér menn vera á villigötum. Einn stærsti prófíllinn í íslenskum körfubolta ákveður að senda fokkjúmerki uppí stúku og einn sérfræðingur þáttarins talar um í þessu samhengi að menn megi ekki missa sjónar á því sem skipti mestu máli, að vinna körfuboltaleiki,“ skrifar Björgvin í færslu á Bónus spjallinu á Facebook og vísar í ummæli Sævars Sævarssonar í Körfuboltakvöldi í gær: „Við höfum hundrað sinnum séð einhverja stæla og eitthvað svona eiga sér stað,“ sagði Sævar. „Þetta er auðvitað algjör óþarfi hjá Kane og auðvitað á hann bara að sleppa þessu en menn verða bara að halda haus. Mega ekki missa sjónar á því sem skiptir mestu máli og það er að vinna körfuboltaleiki. Afvegaleiða umræðuna Björgvin segir margt mikilvægara en að vinna íþróttaleiki. „Fyrir mér er líka mikill munur á því að vera erfiður eða með stæla inni á vellinum og að senda fokkjúmerki upp í stúku í átt að fólki á aldrinum 3-83 ára. Leikmenn eru fyrirmyndir og leikmenn gera mistök en þegar þeir sem fjalla um sportið eru farnir að nánast samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna með því að færa fókusinn á hitt liðið þá er kominn tími á að bakka eitt skref. Meiri standard og fagmennsku takk.“
Bónus-deild karla Tindastóll Grindavík Landslið karla í handbolta Valur Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Fleiri fréttir Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Sjá meira