Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 16:54 Starfsfólk á plani hjá Icelandair fær mikið hrós frá farþega vegna skyndilegs skorts á flugmönnum fyrir ferðalag til Seattle í síðustu viku. Vísir/Vilhelm Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum. Fluginu frá Keflavík til Seattle var aflýst um klukkustund áður en það átti að fara í loftið. Magnús segist í færslu á Facebook sjálfur hafa sloppið tiltölulega vel þar sem hann hafi verið einn á ferð og getað beðið í tvo daga til viðbótar í eigin húsnæði hér heima áður en hann hélt utan. Hann segir hins vegar að aðrir farþegar hafi staðið frammi fyrir mun meiri óþægindum, sérstaklega eldra fólk sem hefði kosið að halda sig við beint flug í stað þess að þurfa að fara í gegnum margar tengingar og millilendingar. Dáðist að þremur konum Magnús Halldórsson. Í færslu sinni hrósar Magnús sérstaklega starfsfólki Icelandair á þjónustuborði félagsins í Leifsstöð. Þar hafi þrjár pólskar konur unnið undir miklu álagi við að finna nýjar leiðir fyrir farþega með skömmum fyrirvara. „Það var merkilegt að sjá hvað þær voru fókusaðar og unnu þétt og hratt að því að leysa úr þessu,“ skrifar hann og segir stórum hluta farþega hafa tekist að komast áfram, meðal annars í gegnum Chicago, Washington og Boston. Hann segir jafnframt að mikið álag og nokkurt drama hafi skapast þegar ljóst varð að ferðinni yrði aflýst með svo skömmum fyrirvara, en að starfsfólkið hafi staðið sig afar vel við erfiðar aðstæður. „Vonandi hafa þær í það minnsta fengið hrós frá einhverjum hjá félaginu fyrir vel unnin störf,“ skrifar Magnús og veltir því upp hvar þær standi í kjarastiganum hjá Icelandair. Vikulangt vesen Undanfarna rúma viku hefur Icelandair aflýst þremur flugferðum og þurft að seinka einni til viðbótar. Síðast var fraktflugi flugfélagsins til Belgíu aflýst í gærkvöldi vegna skorts á flugmönnum. Forstjóri félagsins hefur gefið í skyn að veikindi flugmanna kunni að tengjast yfirstandandi kjaradeilu flugmanna og félagsins hjá ríkissáttasemjara. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, hefur hafnað þeim fullyrðingum og sagt ekkert hæft í því. Færslu Magnúsar í heild sinni má sjá að neðan en hann ferðast reglulega á milli Íslands og Bandaríkjanna. Á dögunum lenti ég í þeirri óskemmtilegu reynslu, að flugi Icelandair til Seattle frá Keflavík var aflýst um einni klukkustund áður en það átti að fara í loftið, en ég var á leið í eitt af mörgum flugum sem ég hef farið þessa leið. Má segja að Grænlensk og kanadísk lofthelgi, sé orðið mitt heimasvæði í loftinu. Þetta var bagalegt - en ekkert stórmál fyrir mig, þar sem ég var einn að ferðast og gat bara beðið tvo daga í viðbót heima á Mýrargötu, og farið svo til Seattle. Það var áhugvert að sjá á hverjum þessi staða bitnaði einna harðast. Það voru þrjár pólskar konur á Service desk-inu hjá Icelandair, sem fengu að leysa úr vandamálum farþega - og tókst með undraverðum hætti að koma stórum hluta farþega í loftið með þessum stutta fyrirvara, einkum í gegnum Chicago, Washington DC og Boston - og svo þaðan áfram á vesturströndina. Þetta hentaði ekki öllum, en það var merkilegt að sjá hvað þær voru fókusaðar og unnu þétt og hratt, að því að leysa úr þessu. Svo fann maður til með elsta fólkinu í hópnum, sem sækir í bein flug - eðilega - frekar en að þurfa að fara í alls konar millilendingar og vesen. Því var ekki skemmt. Merkilegt að sjá hvað það skapast miklar flækjur, og smá drama líka, þegar svona gerist með skömmum fyrirvara. Við farþegahópurinn við Service desk-ið vorum hins vegar heppin að þessar ungu konur í starfsmannaliði Icelandair, voru afar duglegar og úrræðagóðar, og leystu úr vandamálum hratt undir miklu álagi. Ekki veit ég hvar þær standa í kjarastiganum hjá Icelandair, en vonandi hafa þær í það minnsta fengið hrós frá einhverjum hjá félaginu, fyrir vel unnin störf við að koma til móts við þarfir viðskiptavina undir miklu álagi. Icelandair Flug Bandaríkin Kjaramál Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Á dögunum lenti ég í þeirri óskemmtilegu reynslu, að flugi Icelandair til Seattle frá Keflavík var aflýst um einni klukkustund áður en það átti að fara í loftið, en ég var á leið í eitt af mörgum flugum sem ég hef farið þessa leið. Má segja að Grænlensk og kanadísk lofthelgi, sé orðið mitt heimasvæði í loftinu. Þetta var bagalegt - en ekkert stórmál fyrir mig, þar sem ég var einn að ferðast og gat bara beðið tvo daga í viðbót heima á Mýrargötu, og farið svo til Seattle. Það var áhugvert að sjá á hverjum þessi staða bitnaði einna harðast. Það voru þrjár pólskar konur á Service desk-inu hjá Icelandair, sem fengu að leysa úr vandamálum farþega - og tókst með undraverðum hætti að koma stórum hluta farþega í loftið með þessum stutta fyrirvara, einkum í gegnum Chicago, Washington DC og Boston - og svo þaðan áfram á vesturströndina. Þetta hentaði ekki öllum, en það var merkilegt að sjá hvað þær voru fókusaðar og unnu þétt og hratt, að því að leysa úr þessu. Svo fann maður til með elsta fólkinu í hópnum, sem sækir í bein flug - eðilega - frekar en að þurfa að fara í alls konar millilendingar og vesen. Því var ekki skemmt. Merkilegt að sjá hvað það skapast miklar flækjur, og smá drama líka, þegar svona gerist með skömmum fyrirvara. Við farþegahópurinn við Service desk-ið vorum hins vegar heppin að þessar ungu konur í starfsmannaliði Icelandair, voru afar duglegar og úrræðagóðar, og leystu úr vandamálum hratt undir miklu álagi. Ekki veit ég hvar þær standa í kjarastiganum hjá Icelandair, en vonandi hafa þær í það minnsta fengið hrós frá einhverjum hjá félaginu, fyrir vel unnin störf við að koma til móts við þarfir viðskiptavina undir miklu álagi.
Icelandair Flug Bandaríkin Kjaramál Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira