Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar 16. maí 2026 07:18 Samfylkingin og annað félagshyggjufólk, er með skýra sýn á hvaða verkefni þurfi að ráðast í á næstu árum til að gera gott samfélag enn betra. Meginmarkmiðið er einfalt. Einföldum daglegt líf fólks. Lífið er nægilega flókið og óþarfi að þjónusta sveitarfélagsins sé til þess að flækja hlutina enn meira. Setjum skólamálin í forgang og styðjum við grunn-, leik og tónlistarskólana okkar. Hér verja börnin okkar sínum mótunarárum. Við þurfum að endurskoða leikskólamálin, gjöldin og skráningardagana. Hækkunin á leikskólagjöldum er einfaldlega barnaskattur og áhrif breytingana of dýru verði keypt. Við erum með frábæra leikskóla í Fjarðabyggð en breytingar meirihlutans í leikskólamálum hafa búið til óeiningu um málaflokkinn. Það þurfum við að laga. Mikilvægi íþrótta- og tómstunda er ótvírætt og við þurfum að hækka frístundastyrkinn. Við þurfum líka að styðja við krakkana okkar sem ferðast langar leiðir til að taka þátt í mótum og keppa. Það er ólíðandi að við séum að sjá brottfall í íþróttum vegna þess að það kostar of mikið. Þetta er ein af okkar helstu forvörnum og við þurfum að líta á þetta sem fjárfestingu til framtíðar. Aukinn frístundastyrkur nýtist líka breiðari hóp barna, því það er einfaldlega þannig að ekki öll börn finna sig í íþróttum og geta nýtt styrkinn t.a.m. í námskeið og þátttöku í tómstundum þar sem engar keppnir eru. Þess vegna þurfum við bæði, aukinn frístundastyrk og ferðasjóð. Það þarf ekki að vera eitt fram yfir annað. Setjum á laggirnar heimastjórnir, þar sem fólk í hverjum byggðarkjarna fær að taka beinan þátt í að móta ákvarðanir sem hafa áhrif á þeirra nærumhverfi. Við þurfum ekki að hræðast aukið lýðræði, þvert á móti er aukin samfélagsþáttaka einungis af hinu góðu. Fyrirheit flokka um að halda fleiri fundi í byggðarkjörnum að loknum kosningum eru góð en ekkert sem segir að þau loforð verði efnd. Með heimastjórnum tryggjum við að upplýsingagjöf til íbúa verði stöðug og að íbúar fái loksins eitthvað að segja um það sem er að gerast í þeirra bakgarði. Tengjumst betur unga fólkinu okkar, gefum þeim tækifæri til að mennta sig í heimabyggð og ef þau kjósa að fara þá þurfum við að halda tengingunni til að tryggja að þegar þau ljúki námi að þau hugsi fyrst um Fjarðabyggð. Hlúum betur að eldra fólkinu okkar. Eflum heimaþjónustu og stuðning í gegnum verkefnið Gott að Eldast í samstarfi við HSA, fjölgum dagdvalarrýmum og hentugu húsnæði fyrir eldra fólk, stöndum vörð um hjúkrunarrými og þjónustuíbúðir. Eldra fólk á að eiga val um hvar það býr. Stöndum vörð um atvinnulífið, sköpum hér stefnu um ferðaþjónustu og grundvöll fyrir fjölbreyttari störfum. Þrýstum á vegabætur á suðurfjarðarvegi, styðjum við Fjarðagöng og endurskoðum almenningssamgöngur innan sveitarfélagsins í samráði við íbúa. Samgöngur eru lífæð samfélagsins. Það er margt gott í Fjarðabyggð en það skiptir máli hvað er gert og ekkert síður hvernig það er gert. Við munum setja Fjarðabyggð í forgang. Komið með okkur í að byggja upp Fjarðabyggð þar sem þín rödd skiptir máli. Setjum X við S þann 16.maí Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar