Í ljósi sögunnar - Hugleiðing eftir kosningar Ámundi Loftsson skrifar 17. maí 2026 14:32 Eftir fall bankanna 2008 varð fullt útúr dyrum af fólki hjá hjá VG sem var arftaki Alþýðubandalagsins þegar stofnun Samfylkingarinnar hafði mistekist. Samfylkingin átti eins og nafnið ber með sér að vera sameiningarvettvangur félagshyggju- og jafnaðarmanna á Íslandi. Ákafi kratanna að koma Íslandi í Evrópusambandið var það sem eitraði þennan sameiningarvettvang og V G varð til. Væntingarnar til VG voru miklar á þessum tíma. Hið ábyrðarlausa lánadrifna góðæri hafði hrunið og tími ábirgra stjórnmála var runninn upp. En V G brást síðan væntingum almennings í eftirmálum hrunsins með eftirminnilegum og skelfilegum afleiðingum og til urðu hópar eins og Píratar, Alþýðufylkingin og Sósíalistaflokkurinn. Það er óþarfi að rekja sögu þessara hópa að öðru leyti en því að þeir hafa öðru fremur haldið félagshyggjufólki sundruðu. Fokkur Fólksins, sem á einnig uppruna sinn í þessum dapurlega veruleika er kannski eina raunhæfa von þeirra sem höllum fæti standa og háðir eru úrræðum sem ekki eru ofurseldar hagnaðarhyggju. Það sem svo endanlega gerði útaf við möguleika á samstöðu og árangri félagshyggjufólks í stjórnmálum var átta ára ríkisstjórnarseta VG í fangi Sjálfstæðisflokksins. Það innsiglaði varanlega sundrun þess. Félagshyggjufólki er fyrirmunað að standa saman um sín baráttumál. Staða stjórnmálanna á Íslandi er svo eftir eftir því. Höfundur er fyrrum sjómaður og bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Eftir fall bankanna 2008 varð fullt útúr dyrum af fólki hjá hjá VG sem var arftaki Alþýðubandalagsins þegar stofnun Samfylkingarinnar hafði mistekist. Samfylkingin átti eins og nafnið ber með sér að vera sameiningarvettvangur félagshyggju- og jafnaðarmanna á Íslandi. Ákafi kratanna að koma Íslandi í Evrópusambandið var það sem eitraði þennan sameiningarvettvang og V G varð til. Væntingarnar til VG voru miklar á þessum tíma. Hið ábyrðarlausa lánadrifna góðæri hafði hrunið og tími ábirgra stjórnmála var runninn upp. En V G brást síðan væntingum almennings í eftirmálum hrunsins með eftirminnilegum og skelfilegum afleiðingum og til urðu hópar eins og Píratar, Alþýðufylkingin og Sósíalistaflokkurinn. Það er óþarfi að rekja sögu þessara hópa að öðru leyti en því að þeir hafa öðru fremur haldið félagshyggjufólki sundruðu. Fokkur Fólksins, sem á einnig uppruna sinn í þessum dapurlega veruleika er kannski eina raunhæfa von þeirra sem höllum fæti standa og háðir eru úrræðum sem ekki eru ofurseldar hagnaðarhyggju. Það sem svo endanlega gerði útaf við möguleika á samstöðu og árangri félagshyggjufólks í stjórnmálum var átta ára ríkisstjórnarseta VG í fangi Sjálfstæðisflokksins. Það innsiglaði varanlega sundrun þess. Félagshyggjufólki er fyrirmunað að standa saman um sín baráttumál. Staða stjórnmálanna á Íslandi er svo eftir eftir því. Höfundur er fyrrum sjómaður og bóndi.