Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur Valur Páll Eiríksson skrifar 18. maí 2026 12:30 Pétur Rúnar Birgisson, fyrirliði Tindastóls, segir Stólana ákveðna í að endurupplifa ekki það sem gerðist í Síkinu fyrir nánast sléttu ári síðan. Vísir/Hulda Margrét Pétur Rúnar Birgisson, leikmaður Tindastóls, segist spenntur fyrir leik fjögur í úrslitaeinvígi hans manna við Grindavík um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta. Leikurinn fer fram í Síkinu í kvöld og Grindavík vinnur titilinn með sigri. „
Stemningin er góð. Það er tilhlökkun í mannskapnum að spila aftur. Það er gaman að spila þétt og ég held að menn séu spenntir að halda áfram,“ segir Pétur í samtali við Vísi. Andinn hafi eðlilega aukist í samfélaginu á Sauðárkróki með sigri Tindastóls í Grindavík á föstudagskvöldið var, enda einvígið þar af leiðandi á lífi. „Þetta er alltaf bara geggjað. Það eru allir með okkur í liði og spenntir fyrir þessu. Það er ekkert verra að það er komið ágætis veður hérna, sólin skín. Það verður væntanlega fjör í tjaldinu fyrir leik og vonandi taka þau það með sér inn í Síkið. Það er verður stemning og gaman,“ segir Pétur. Hvað gerðu Stólarnir rétt í þessum þriðja leik á föstudaginn eftir töpin í fyrstu tveimur leikjum einvígisins? „Leikur tvö og þrjú voru ekkert svo frábrugðnir. Við vorum góðir í leik tvö en hittum svolítið illa. Það eru alltaf einhverjar smá tilfærslur milli leikja hjá báðum liðum og það breytist ekkert. Það verða einhverjar breytingar milli leikja þrjú og fjögur,“ „Varnarlega náðum við að gera vel að vera í línum svo þeir komust ekki á körfuna og þurftu meira að skjóta fyrir utan. Við vorum að gera betur á aukaleikarana að gefa þeim ekki galopin skot, að þurfa að hugsa sig aðeins meira um,“ segir Pétur. „En það er bara nýr leikur í kvöld sem á sitt líf og við þurfum að mæta tilbúnir í hann.“ Stjarnan fagnaði Íslandsmeistaratitlinum á Sauðárkróki í fyrra eftir sigur á Tindastóli í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Grindavík getur tryggt sér titilinn í kvöld og Pétur segir heimamenn ákveðna í að þurfa ekki að upplifa titilfögnuð andstæðings í Síkinu annað árið í röð. „Já, klárlega. Það er planið að lenda ekki í því aftur. Við þurfum bara að mæta klárir og tökum eiginlega ekkert annað með okkur en sigurinn úr síðasta leik. Svo þurfum við að mæta tilbúnir og gera eins vel ef ekki betur og sjá til þess að það verði ekki fagnað í kvöld,“ segir Pétur. Leikur Tindastóls og Grindavíkur er klukkan 19:15 í kvöld. Upphitun hefst á Sýn Sport Ísland klukkan 18:30.
Bónus-deild karla Tindastóll Grindavík Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Sjá meira