Innlent

Rýnt í mögu­lega meiri­hluta í Reykja­vík

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum verður rætt við prófessor í stjórnmálafræði um stöðuna í Reykjavík eftir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. 

Við veltum upp þeim möguleikum sem eru í stöðunni þar og förum svo einnig yfir úrslitin á landsbyggðinni þar sem kosið var í sveitarstjórnir. 

 Þá heyrum við í framkvæmdastjóra Maskínu sem segir að skoðanakannanir hafi verið nokkuð nálægt úrslitunum að þessu sinni. 

Einnig fjöllum við um afgreiðslu utanríkismálanefndar Alþingis á þingsályktunartillögu um þjóðaratvæðagreiðsluna sem fram á að fara í haust. 

Í sportinu fjöllum við svo um íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna sem fór til Njarðvíkur og hitum upp fyrir karlaleikinn sem fram fer í kvöld.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 18. maí 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×